Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu klukkan 14:38 á morgun.
Kvennafrí verður haldið á morgun, mánudaginn 24.oktober. Þá eru konur hvattar til að leggja niður vinnu sína klukkan 14:38 og mæta á Austurvöll klukkan 15:15 til að taka þátt í samstöðufundi. Samstöðufundir verða einnig haldnir á Akureyri, Hellu, Neskaupsstað, Grundarfirði og Höfn.
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands sagði í samtali við Pressuna ástæðu þess að blásið væri til kvennafrís í ár vera að það hittist svo á að kvennafrídagurinn væri í sömu viku og Alþingiskosningar. „ Við viljum að kjarajafnrétti sé bæði eitt af áherslumálunum bæði í kosningabaráttunni og aðaláherslumál nýrrarríkisstjórnar,“ segir Brynhildur.
Brynhildur bætir við að þó að Ísland hafi verið efst á lista Alþjóðaefnahagsráðsins sem það land í heiminum þar sem staða kvenna er sem best, þýði það ekki að fullu jafnrétti hafi verið náð. Það sýnir eingöngu hve staðan er slæm annars staðar. „Við erum best í heimi, því það er metið að við konur höfum náð 88,1%af stöðu karla. Það er ekki jafnrétti! Enn vantar herslumuninn!,“ segir Brynhildur.
Kvennafrídagurinn var haldin í fyrsta sinn árið 1975 þegar Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ákvað að árið skyldi sérstaklega helgað málefnum kvenna undir kjörorðunum „jafnrétti, framþróun, friður.“ Íslensk kvennasamtök tóku höndum saman í upphafi árs 1975 til að skipuleggja aðgerðir ársins og héldu m.a. fjölsótta ráðstefnu í júní þar sem staða og kjör kvenna voru rædd og fjölmargar ályktanir og tillögur samþykktar.
Rauðsokkahreyfingin setti fram tillögu þess efnis að konur tækju sér frí frá störfum á degi Sameinuðu þjóðanna, þann 24. október. Talið er að 25.000 manns hafi safnast saman á útifundi á Lækjartorgi þann dag árið 1975. Kvennafrídagur var aftur haldinn árið 1985, 2005 og 2010. Þetta verður því í fimmta sinn sem blásið er til kvennafrís á Íslandi.