fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Guðlaug: „Aldrei orðið fyrir leiðindum varðandi klæðnað eða hegðun“

Guðlaug býr í landi múslima – Segir fáfræðina hættulega

Auður Ösp
Þriðjudaginn 24. janúar 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég átti von á því að við yrðum miklu heftari, en í raun geri ég nákvæmlega það sama hérna og heima. Ég hef nokkrum sinnum verið spurð að því hvernig ég komist á milli staða þar sem ég megi ekki keyra, sem er ekki rétt. Ég má fara í vínbúðirnar, kaupa svínakjöt og borða. Eini staðurinn sem að við þurfum að hylja okkur er í moskunum,“ segir Guðlaug Ólöf Sigfúsdóttir, sem fyrir fimm árum fluttist búferlum ásamt fjölskyldu sinni til Barein, lítils eyjaríkis í Persaflóa, þar sem 70 prósent íbúa eru múslimar. Guðlaug Ólöf, eða Lauga eins og hún er oftast kölluð, kveðst fá ófáar spurningar um lífið í hinu framandi landi, spurningar sem séu litaðar af fyrirfram ákveðnum hugmyndum. Þannig er hún til að mynda spurð hvort það sé ekki stöðugt litið niður á hana og hvort henni finnist ekki ömurlegt að þurfa alltaf að hylja sig.

Fjölskyldan var búsett á Íslandi þegar eiginmaður Laugu, Mikael Lykkegaard Laursen, fékk spennandi atvinnutilboð í Barein, en hann starfar í dag sem flugmaður hjá DHL. Í samtali við blaðamann viðurkennir Lauga að það hafi vissulega örlað á kvíða fyrir flutningum í framandi land, en einnig spennu.

„Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég væri að koma okkur út í. Ég hafði varla heyrt minnst á Barein. Ég reyndi að finna Íslendinga hérna en það gekk ekki upp, svo að netið og google var það eina í stöðunni.“

25 kílómetra brú tengir Barein-eyju við Sádi-Arabíu en að sögn Laugu eru löndin afar ólík. Þannig sé mun meira frjálsræði í Barein á meðan strangari og fastmótaðri reglur gildi í Sádi-Arabíu. Telur eyjan rúmlega 1,4 milljónir íbúa og þar af er helmingur íbúa útlendingar. Alls 70 prósent innfæddra eru shía-múslimar og 30 prósent sunni-múslimar.

„Við lásum okkur til um að þrátt fyrir að Barein sé frekar frjálst land að þá þyrftum við samt sem áður að hylja axlir og hné þegar við færum út úr húsi. En svo kom í ljós að það er bara bull!“ segir Lauga en hún lýsti einnig lífinu í Barein í færslu á Facebook nú á dögunum.

„Fyrst þegar ég fór að skoða hvernig þetta væri í Barein þá las ég að um 70 prósent væru múslimar og að reglurnar væru semsagt að hylja hné og axlir. Ég fylgdi þessu, en fljótlega eftir að við fluttum hingað hittum við yndislegt par sem eru bæði frá Barein og við sitjum á kaffihúsi og ræðum hvernig þetta sé. Ég spyr þau út í klæðnaðinn og þau hlæja að mér; segja mér að við séum í Barein og ég geti klætt mig eins og mig langar og geti gert það sem mig langar til.“

Vinsælt er hjá gestum fjölskyldunnar að heimsækja moskuna. Ljósmynd/úr einkasafni.
Moskan framandi Vinsælt er hjá gestum fjölskyldunnar að heimsækja moskuna. Ljósmynd/úr einkasafni.

23 kirkjur í Barein

Í Barein ganga börn Laugu og Mikael, sem í dag eru 7 og 18 ára, í alþjóðlegan skóla, eldri dóttirin í bandarískan og yngri sonurinn í breskan. „Ég lít á það sem forréttindi að hafa þau í þessum skólum, þar sem þau kynnast fólki frá ýmsum löndum og þjóðernum. Í bekknum hans Sebastians eru 25 nemendur, þar af eru tveir sem eru ekki múslimar,“ segir Lauga og bætir við að fjölmenningin geri það að verkum að börnin velji sér ekki vini út frá trú eða litarhætti. Þá sé haldið upp á jól, prophets birthday, páska og svo framvegis og allir taka þátt.“

Mæðginin Guðlaug og Sebastian við skólaútskrift. Ljósmynd/úr einkasafni
Mæðginin Guðlaug og Sebastian við skólaútskrift. Ljósmynd/úr einkasafni

Eftir fimm ára dvöl í Barein kveðst Lauga ekki geta verið sammála andstæðingum mosku á Íslandi, sem haldi því fram að engar kirkjur sé að finna í Mið-Austurlöndum. „Þar þurfa þeir aðeins að lesa sig betur til. Það er eitt land hérna í Mið-Austurlöndum sem er ekki með með opinbera kirkju og það er Sádi-Arabía. Til dæmis eru 23 kirkjur hérna í Barein,“ segir Lauga og bætir við að fordómar Vesturlandabúa gagnvart múslimum séu oftar en ekki tilkomnir vegna neikvæðs fréttaflutnings.

Langar ekki heim í bráð

„Það er virkilega sorglegt að lesa „staðreyndir“ frá fólki heima sem þekkir ekki til hérna. Fæst af þessu fólki hefur komið til Mið-Austurlanda, heldur dæmir út frá neikvæðum fréttum og áróðursefni af netinu. Múslimar hérna í Barein hata ISIS jafn mikið og Íslendingar, ISIS hefur ekkert að gera með múslima, ISIS eru hryðjuverkasamtök sem vilja bara athygli, hvernig sem þeir fá hana.“

Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í Barein og hyggur ekki á flutninga heim í bráð. Ljósmynd/úr einkasafni.
Líf og fjör Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir í Barein og hyggur ekki á flutninga heim í bráð. Ljósmynd/úr einkasafni.

Lauga segir jafnframt ótrúlegt að heyra Íslendinga halda því fram að ekki sé hægt að búa við fjölmenningu.

„Ég er ennþá á lífi í landi múslima, hef aldrei, síðan ég flutti hingað, orðið fyrir einhverjum leiðindum frá múslimum varðandi minn klæðnað eða hegðun. Hefur þetta fólk einhvern tímann farið til eða búið í múslimalandi? Þekkir það til? Held ekki. Þetta er einmitt það sem er hættulegast og það er fáfræðin.“

Lauga kveðst svo sannarlega ekki sjá eftir flutningunum í dag, enda forréttindi að fá að upplifa annan menningarheim, og þá sérstaklega fyrir börnin. „Ég er ekki að segja að Barein sé fullkomið, langt í frá, en við finnum ekki fyrir því og okkur öllum líður vel hérna. Eins og staðan er núna langar okkur ekkert heim.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi