fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Barnafans í Borgarleikhúsi

Blái hnötturinn frumsýndur um helgina – Fjallar um börn sem búa lengst úti í geimi

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. september 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á laugardaginn frumsýndi Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason. Leikgerðin er eftir Berg Þór Ingólfsson sem jafnframt leikstýrir verkinu. Um er að ræða söngleik fyrir börn. Tónlistin er samin af Kristjönu Stefánsdóttur.

Leikritið fjallar um börn sem búa lengst úti í geimnum og fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum; þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum. Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og hefst þá mikið og hættulegt ævintýri.

Einvala lið leikhúsgesta var viðstatt frumsýninguna eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, en á vef Borgarleikhússins segir að verkið hafi farið sigurför um heiminn.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ásamt syni sínum, Stefáni Birni.
Feðgar Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ásamt syni sínum, Stefáni Birni.
Lovísa Halldórsdóttir með pabba sínum, leikaranum Halldóri Gylfasyni.
Feðgin Lovísa Halldórsdóttir með pabba sínum, leikaranum Halldóri Gylfasyni.
Andri Snær ásamt Margréti Sjöfn Torp hjúkrunarfræðingi.
Hjón Andri Snær ásamt Margréti Sjöfn Torp hjúkrunarfræðingi.
Hér eru mæðgurnar frú Vigdís Finnbogadóttir og Ástríður Magnúsdóttir. Með þeim á myndinni er dóttir Ástríðar.
Þrjár kynslóðir Hér eru mæðgurnar frú Vigdís Finnbogadóttir og Ástríður Magnúsdóttir. Með þeim á myndinni er dóttir Ástríðar.
Stefán Jónsson leikari og Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Hýr á brá Stefán Jónsson leikari og Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Vilhelm Anton Jónsson og Illugi Vilhelmsson.
Naglbítarnir Vilhelm Anton Jónsson og Illugi Vilhelmsson.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“