fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Hulda Snæberg leiðbeinir um „tuðfrítt uppeldi“

„Aðaltrixið er að nota húmorinn“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 23. september 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barnauppeldi getur tekið á hvert einasta foreldri, mismikið, en flestir foreldrar hafa upplifað erfið tímabil og ýmiss konar vanda í tengslum við uppeldi. Þá er misjafnt hvernig við bregðumst við og hversu fljót við erum að yfirstíga hindranirnar. Sumir leyfa tímanum að vinna með sér aðrir leita eftir aðstoð fagaðila. Sumir öskra, aðrir tuða. Hulda Snæberg Hauksdóttir, leikskólakennari og fjölskyldumeðferðarfræðingur, hefur að undanförnu þróað og kennt foreldranámskeið þar sem hún leiðbeinir um það sem hún kallar „tuðfrítt uppeldi“.

„Tuð þýðir í raun og veru það að við erum að endurtaka í sífellu sömu setninguna, eða ræða sama hlutinn, gjarnan fyrir daufum eyrum. Við höldum að við séum að leiðrétta hegðun eða biðja einhvern um að breyta einhverju, en ekkert breytist!“ segir Hulda aðspurð hvað hún meini eiginlega með orðinu „tuð“.

Tuðið er vafalaust eitthvað sem margir tengja við en það getur reynst þrautin þyngri að losna við það og er það raunverulega hægt?

„Já, auðvitað! Með því að ákveða hvernig samskipti við ætlum að eiga innan fjölskyldunnar getum við einblínt á jákvæðni og lausnir og notað leiðir sem skila árangri! Bæði fyrir okkur og börnin.“

Hulda telur mikilvægt að foreldrar viti og finni að þeir séu að gera góða hluti í uppeldi barna sinna, en einnig að þeir geti metið hvenær gott er að sækja sér ráð til fagaðila t.d. skóla, leikskóla, sálfræðings o.s.frv.

„Við foreldrar þurfum að upplifa ánægju og vellíðan í foreldrahlutverkinu og vita að við erum að miðla góðum hlutum til barnanna okkar.“

Góð leynitrix

Þetta hljómar eins og tónlist og sennilega eitthvað sem allir foreldrar væru til í að tileinka sér en þegar á reynir er stutt í tuðið. Áttu einhver leynitrix til þess markvisst að bæta uppeldisaðferðir?

„Ég á mörg leynitrix og í rauninni felast helstu trixin í breyttu samskiptamynstri og betra skipulagi innan heimilisins. Til að ná því þarf að byrja á að ræða við makann og leggja svolítið línurnar með hlutverk fullorðinna inni á heimilinu og ekki síður hlutverk barnanna. En aðaltrixið felst samt í húmor og hvernig við notum hann í uppeldinu!“

Mjög áhugavert! En geturðu skýrt þetta nánar varðandi húmorinn, enda erfitt að ætla foreldri sem er byrjað að tuða að venda kvæði sínu í kross og fara að segja brandara?

„Dæmi um húmor í uppeldinu; barnið vill ekki fara í skó og þú gefur skónum líf og lætur þá tala við barnið – það er fyndið ef maður er t.d. fjögurra ára og öfugsnúinn að morgni, eða þá að foreldri reynir að troða sér í föt barnsins með tilþrifum og kemst augljóslega ekki í þau! Ef barn eða unglingur vill ekki matinn sinn má nota orðin sem þau hafa notað um matinn þegar er kallað á þau í kvöldmat t.d. „Komdu að borða elskan mín, það eru drullukökur með ælusósu og slímkartöflum í matinn!“ Þetta vekur oft kátínu og léttir lund! Fjölskyldan getur þá gantast með máltíðina og leikið sér að orðum í stað þess að suða og tuða við matarborðið. Eins virkar vel að rifja upp eitthvað fyndið sem börnin gerðu þegar þau voru yngri. Þau elska að heyra fyndnar sögur af sjálfum sér.“ Hulda brosir og virðist geta sniðið grín í kringum alls konar hversdagslegar athafnir.

Tuð er leiðinlegur ávani og það getur reynst erfitt og tekið langan tíma að breyta venjum. Hvaða áherslur eru á námskeiðinu og þarf fólk ekki að æfa sig til þess að ná árangri í þessum efnum eins og öðrum?

„Á örnámskeiðinu fer ég yfir helstu áskoranir sem mæta foreldrum í uppeldi barna sinna. Þátttakendur fá tækifæri til að spjalla í litlum hópum og að lokum svara ég spurningum og vangaveltum þátttakenda. Við fáum okkur líka kaffi og te eða vatn og megum standa upp og ganga um gólf því það getur verið krefjandi að þurfa að sitja kyrr eftir vinnudaginn!“

Fyrsta námskeið vetrarins verður auglýst fljótlega og haldið í október. Hægt er að skrá sig og panta pláss á netfanginu ornamskeid2016@gmail.com en þar er jafnframt öllum fyrirspurnum svarað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi