fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fókus

Neglur Sigmundar Davíðs eru listaverk

„Hann sagðist vera mjög hrifinn af því að fá að taka þátt í verkinu og vera partur af því,“ segir listakonan Katla

Ritstjórn DV
Mánudaginn 10. október 2016 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Neglur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar prýða nú listaverk Kötlu Guðbjargar Gunnarsdóttur nemanda í Lungaskólanum á Seyðisfirði

„Ég tók eftir að Sigmundur Davíð var í bænum svo ég ákvað að búa til boðskort fyrir hann á opnun sýningarinnar D-vítamín, sem nemendur Lungaskólans ásamt gestakennurunum Lotte Rose Kjær Skau og Daniel Grossman stóðu fyrir“ segir Katla

Verk Kötlu er kassi á borði á gólfkúlum og á hjólum. Kassinn hefur gat að framan til að stinga inn höndinni og tvö göt á báðum hliðum til að stinga inn naglaklippum.

Neglaafklippurnar detta ofan í spaghettíið
Listaverkið Neglaafklippurnar detta ofan í spaghettíið

„Hugmyndin byrjaði þegar ég var að klippa neglurnar og fór að pirrast á því hvað þær skjótast mikið út um allt. Ég vildi búa til eitthvað sem kæmi í veg fyrir það,“ segir Katla.

Katla segir að fólki hafi fundist þetta svolítið flókið spil svo hún þurfti að standa við verkið út opnunina sem leiðbeinandi.

Hér hafa neglurnar blandast spaghettíinu
Neglur Sigmundar Hér hafa neglurnar blandast spaghettíinu

„Sigmundur Davíð gekk brosandi inn um dyrnar. Við heilsuðumst, hann tók af sér vettlingana og ég leiðbeindi honum í gegnum ferlið. Svo tókumst við auðvitað í hendur eftir að nöglin hans var fallin niður á spaghettíið. Hann þakkaði kærlega fyrir sig og sagðist vera mjög hrifinn af því að fá að taka þátt í verkinu og vera partur af því,“ segir Katla að lokum.

Neglurnar detta niður á spaghettíið gegnum rör
Listaverkið ofan frá Neglurnar detta niður á spaghettíið gegnum rör
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum

Hætti að drekka áfengi fyrir 5 árum
Fókus
Í gær

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu

Gerði ótrúlega uppgötvun á Íslandi – Segir gestgjafa hennar hafa hlegið þegar hún spurði að þessu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf

Velta fyrir sér tekjum Gústa B eftir að hann pungaði út milljónum í sumargjöf
Fókus
Fyrir 2 dögum

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni

Söngkona rýfur þögnina – Sögð föst í ástarþríhyrning með móður sinni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sagan á bak við Frank Mills

Sagan á bak við Frank Mills
Fókus
Fyrir 4 dögum

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára

Prumpulykt að gera út af við hjónaband til 30 ára