fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Áhrifavaldurinn Amanda var ekkert nema lygi: Þáði endalaus fríðindi af grunlausum fyrirtækjaeigendum og ferðaðist um heiminn

Margrét Gústavsdóttir
Fimmtudaginn 28. júní 2018 15:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Bali er búin að vera ógleymanleg upplifun. Þetta er áfangastaður sem þú verður að sjá áður en þú deyrð.“

Þetta skrifar Amanda Smith við Instagram mynd af sjálfri sér þar sem hún liggur makindalega í hengirúmi við frjósaman frumskóg.

Nokkrum vikum áður hafði hún ferðast Nýja Sjáland og þar tók hún að sjálfssögðu stórkostlegar myndir af hafinu og klettunum. Þar áður var Amanda í Tulum í Mexíkó en áður en hún kom þangað var hún á öfundsverðu ferðalagi um Evrópu.

Í stuttu máli virðist líf Amöndu Smith einfaldlega ganga út á að ferðast um heiminn og þakka hótelum og veitingastöðum fyrir góðgjörðir þeirra með myndbirtingum á þessum sívaxandi samfélagsmiðli.

Amanda er semsagt það sem kallað hefur verið „áhrifavaldur“ á samfélagsmiðlum. Öflugt markaðstæki ein og sér, án þess að hafa mikið fyrir því.

Merkilegt að hún skuli enn vera að

Margir vilja reyndar meina að það sé kraftaverk að Amanda skuli enn vera að á Instagram.

Amanda Smith, öðru nafni @wanderingggirl á Instagram er nefnilega karakter sem var búinn til af markaðsstofunni Mediakix í þeim tilgangi að sýna fram á hversu einfalt það er fyrir hvern sem er að bjóðast til að kynna varning í gegnum falskan Instagram reikning.

Já, þú last rétt – það er ekki nóg með að fylgjendurnir séu fæstir raunverulegar manneskjur, eigandi reikningsins er líka uppspuni frá rótum.

Liðsmenn Mediakix borguðu semsagt fyrir fylgjendur, birtu svo útpældar og ákaflega glamúrus myndir úr myndabönkum og sköpuðu þannig, á stuttum tíma, tálsýn um öfundsverða, fallega stelpu sem ferðast um heiminn og lifir fáránlega ljúfu lífi án þess að borga krónu fyrir.

Þeir sendu svo tölvupósta á fjöldan allann af fyrirtækjum sem gáfu henni loforð um hin ýmsu fríðindi en eðlilega þáði hún þetta aldrei, enda hefur hún aldrei verið til.

Héldu að reikningnum yrði lokað

Talsmenn Mediakix greindu reyndar fyrst frá þessu síðasta sumar og útskýrðu þá að með uppátækinu hefðu þeir viljað sýna hvernig fjölmörg fyrirtæki eru alls ekki með á nótunum þegar kemur að fölskum fylgjendum eða „engagement“ á Instagram.

Margir verða við bónum hinna og þessa „áhrifavalda“ um fría gistingu, mat eða aðra þjónustu en vita í raun ekki hvort þetta fólk sé jafn áhrifaríkt og það gefur sig út fyrir að vera.

Í kjölfar yfirlýsingarinnar reiknuðu þeir eðlilega með að reikningnum @wanderingggirl yrði strax lokað en sú varð ekki raunin.

Þeir afréðu því að halda áfram en nú í opinberu samstarfi við ferðabransann og áfram í þeim tilgangi að vekja fyrirtækjaeigendur til umhugsunar um á hvað þeir væru að veðja.

Good morning Switzerland ☀️?? #breakfastwithaview #travelinspo

A post shared by Amanda Smith (@wanderingggirl) on

„Að koma sér á framfæri í gegnum samfélagsmiðla getur verið krefjandi verkefni, sérstaklega fyrir minni fyrirtæki. Það hafa ekki allir fjármagn til að kaupa þjónustu af markaðsfyrirtækjum og fæstir hafa þekkinguna til að sjá í gegnum þetta,“ segir Evan Asano forstjóri Mediakix en á heimasíðu fyrirtækisins má lesa ýtarlegar um málið og hvernig hver sem er getur falsað sér leið og orðið svokallaður „áhrifavaldur“ á Instagram.

Ekki er allt sem sýnist, – og allra síst á netinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“

Fékk fyrsta ofsakvíðakastið árið 2021 – „Þetta er versta tilfinning sem ég hef upplifað“
Fókus
Í gær

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“

Anne Hathaway þurfti að slumma tíu menn – „Þetta hljómaði viðbjóðslega“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leið eins og Mary Poppins

Leið eins og Mary Poppins
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst

Eiginmaður Katrínar segir þau hafa farið að rífast þegar þau hittust fyrst
Fókus
Fyrir 3 dögum

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“

Gunnar sat 12 spora fund í morgun þegar eitt vakti áhuga hans – „Ég er sjálfur sekur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell