fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Helgarferð til Brighton: Afslöppun, verslun og gleði í höfuðborg frjálslyndis

Björn Þorfinnsson
Þriðjudaginn 25. desember 2018 15:00

Mynd/Pixabay

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt fyrir jól brá yðar einlægur sér til Englands í stutta helgarferð á aðventunni enda er örugglega einhvers staðar vísindalega sannað að slíkar ferðir bæta, hressa og kæta. Að þessu sinni var ákveðið að halda til borgarinnar Brighton, sem er í klukkustundar fjarlægð í suðurátt frá London. Þó að London sé frábær þá er mikilvægt að opna augun fyrir nýjum stöðum og upplifun.

Langbest er að fljúga til Gatwick-flugvallar Londonborgar en frá honum er aðeins tæpur hálftími í lest til Brighton. Til samanburðar tekur tæpar tvær klukkustundir að ferðast frá Heathrow-flugvelli og rúmlega tvo tíma frá Stansted.

Strax í lestinni til borgarinnar hitti ég hressan borgarbúa sem hafði gaman að því að ráðleggja mér í hvívetna. „Í Brighton getur þú labbað út á nærbuxunum einum fata og það veitir þér enginn sérstaka eftirtekt,“ sagði kappinn glaðlega. Fyrst taldi ég að maðurinn hlyti að vera að ljúga þessu en eftir nokkrar klukkustundir í Brighton þá komst ég að því að þetta er líklega hverju orði sannara.

Frjálslyndið er aðalsmerki Brighton enda er borgin orðin höfuðborg samkynhneigðra í Bretlandi. Þann sess öðlaðist borgin ekki af sjálfri sér heldur hefur sú þróun tekið rúm tvö hundruð ár. Í dag er talið að allt að 15% íbúa Brighton séu sam- eða tvíkynhneigðir og víða um borgina má sjá regnbogafána blakta við hún.

Göngutúr um Brighton-bryggju

Brighton Pier

Hin aldagamla Brighton-bryggja blasir við þegar gengið er niður að sjávarsíðu borgarinnar. Bryggjan er afar tilkomumikil og þar er veitingastaður, sölubásar og margs konar leiktæki fyrir börn. Bryggjan er afar vinsæl á heitum sumardögum en ekki er síður notalegt að ganga hana endilanga kappklæddur á svölum vetrardögum og fylgjast með gæfum mávunum berjast um alla bita sem í boði eru. Frá bryggjunni blasa við leifar Vesturbryggjunnar svokölluðu sem var enn eldra og tilkomumeira mannvirki. Vesturbryggjan var opnuð með pomp og prakt árið 1866 og var krúnudjásn Brighton-borgar allt þar til henni var lokað árið 1975 og þá hrakaði mannvirkinu hratt. Árið 2003 urðu tveir eldsvoðar til þess að bryggjan hrundi að mestu leyti og núna stendur aðeins brothætt grindin upp úr öldurótinu. „Borgin kveikti í bryggjunni til þess að fá tryggingarféð. Það borgaði sig ekki að gera við hana,“ sagði áðurnefndur Brighton-búi sem ég spjallaði við í lestinni eins og ekkert væri sjálfsagðara.

British Airways-turninn
Vesturbryggjan var glæsilegt mannvirki í eina tíð
Rústir bryggjunnar eru nánast átakanlegar

Í kjölfar brunans reisti British Airways eins konar útsýnisturn. Að sögn viðmælanda míns fyrirlíta flestir borgarbúar turninn en þar má þó sjá skemmtilegt sjónarhorn af borginni. Ég ákvað að sýna Brighton-búum stuðning minn í verki, eða öllu heldur þessum eina Brighton-búa sem laug þessu að mér, og hunsa turninn.

Royal Pavilion

Ein helsta ferðamannaperla Brighton er þessi undarlega lágreista höll sem var byggð fyrir rúmum tvö hundruð árum sem sumarathvarf fyrir Georg IV. Segja má að höllin birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum í hjarta borgarinnar enda minnir arkitektúrinn á Mið-Austurlönd eða Indland. Garðar hallarinnar eru vinsælir til göngutúra, sérstaklega á sumrin, og ferðamenn geta skoðað höllina að innan fyrir vægt gjald.

The Royal Pavilion
The Lanes. Greinarhöfundur mælir sérstaklega með kránni The Font fyrir ölóðar boltabullur.

 

The North Laine

Afar skemmtilegt svæði. Um 400 mismunandi búðir, krár, veitingastaðir og listagallerí í litlum lágreistum byggingum. Þar eru margar bestu knæpur borgarinnar, til dæmis The White Rabbit sem státar af Lísu í Undralandi-þema og kokteilbarinn Bar Valentino sem er einn sá elsti í borginni, að sögn, og stúdentabarinn Hobgoblin.

North Laine

The Lanes

Afar skemmtilegt svæði sem minnir stundum á hálfgert völdunarhús. Inngangurinn er skammt frá The Royal Pavilion og hlykkjast síðan upp að Churchill-verslunarmiðstöðinni. Þar er mikið af skartgripabúðum og alls konar skringilegum verslunum auk þess sem krár og veitingastaðir eru alltaf innan seilingar. Ef einhverjar þurfa að losna við fótboltaóðan makann þá er afar sniðugt að henda viðkomandi inn á hina rúmgóðu krá The Font. Um er að ræða gamla kapellu sem gaman er að heimsækja.

Choccywoccydoodah

Nafnið eitt og sér er næg ástæða til þess að heimsækja þessa verslun sem finna má á The Lanes. Þarna er nánast allt gert úr súkkulaði, styttur og ýmiss konar skrautmunir. Á efri hæðinni er svo skemmtilegt kaffihús þar sem það er dauðasynd að kaupa sér ekki heitt súkkulaði.

Súkkulaðiorgía

 

Veitingastaðir

Það væri að æra óstöðugan að mæla með veitingastöðum í Brighton. Úrvalið er gríðarlegt af frábærum stöðum og í raun og veru er erfitt að gera mistök. Það var ætlun okkar að panta borð á The Coal Shed, afar vinsælu steikhúsi í borginni, en öll borð voru uppbókuð um tveimur vikum fyrir brottför. Af biturri reynslu er því mælt með að panta borð á veitingastöðum með talsverðum fyrirvara, sérstaklega um helgar.

Fyrsta kvöldið vorum við nýlent og þreytt og duttum því inn á taílenska veitingastaðinn Sawadee á St. James-stræti. Okkur hafði borist til eyrna að maturinn þar væri í uppáhaldi hjá Emilíönu Torrini og ef það er lygasaga þá ber ég bara hér með ábyrgð á því að festa hana í sessi! Veitingasalurinn er ekkert sérstaklega fallegur en á móti kemur að maturinn var frábær og á góðu verði. Rúmensk transkona veitti okkur síðan þá bestu þjónustu sem við höfum upplifað og því mæli ég óhræddur með staðnum.

Seinna kvöldið höfðum við síðan pantað borð á The Indian Summer á East-stræti sem á að vera dáðasti indverski staður borgarinnar. Sá staður var afar smekklegur og þjónustan góð en maturinn var í raun og veru bara allt í lagi. Mögulega spilaði inn í að hádegisverður var snæddur óvenju seint og því hafði svengdin ekki alveg sagt til sín. Það var þó ekki hægt að sleppa borðinu enda staðurinn þéttsetinn.

Að endingu verð ég að mæla með litlum ítölskum veitingastað, og búð, sem heitir VIP eða Very Italian Pizza. Ítalskur þjónn hafði tjáð okkur að þarna væru bestu pítsur Brighton í boði og það mat sérfræðingsins reyndist alveg hárrétt. Staðurinn er þó afar lítill, rétt um tíu borð, og því er það algjör heppni ef maður fær borð strax. Einhver bið er þó þess virði.

Gisting

Að sjálfsögðu er einnig ógrynni af hótelum í boði í Brighton og ómögulegt að þykjast vera með einhverja sérfræðiþekkingu. Við bókuðum herbergi í tvær nætur á skemmtilegu litlu tólf herbergja hóteli sem heitir Blanch House og er við Atlingworth-stræti. Á heimasíðu hótelsins kemur fram að meðal annars Noel Gallagher og Gwyneth Paltrow hafi gist þar en öllum hugsandi mönnum er náttúrulega skítsama um það.

Á hótelinu eru börn réttilega bönnuð, án gríns, og fönkí breskur andi svífur yfir vötnum. Þjónusta starfsfólks er algjörlega frábær og allt viðmót afar persónulegt. Til dæmis lentum við á spjalli við einn af eigendunum, Kevin, sem átti bara einn þátt eftir af íslensku sjónvarpsþáttaröðinni Ófærð og var gjörsamlega heillaður.

Herbergi hótelsins eru sum hver ansi litrík og skemmtileg en gott er að láta ekki hljóðbærni hússins og afar lítil baðherbergi fara í taugarnar á sér. Ekki er síðan annað hægt en að minnast á afar smekklegan bar í móttöku hússins og frábæran morgunverð sem er innifalinn. Nóttin kostar um 20 þúsund krónur sem er ágætis verð.

Blanch House
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu

Uppnám á tónleikum Laufeyjar – Hundruð falsaðra miða í umferð og sviknir aðdáendur grétu
Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“