Mynd
Horfðu á pabba drepa mömmu
Í dag hófust réttarhöld í Noregi yfir manni sem varð eiginkonu sinni að bana í Bergen á síðasta ári. Þrjú börn hjónanna, öll á leikskólaldri, urðu vitni að morðinu og var það elsta barnið sem hringdi í neyðarlínuna. Lýsingar í frétt norska ríkisútvarpsins frá réttarhöldunum eru vægast sagt sláandi.