fbpx
Laugardagur 18.maí 2024

Vilhjálmur Birgisson

Landsvirkjun svarar ásökunum Vilhjálms – „Ekkert er fjær sanni“

Landsvirkjun svarar ásökunum Vilhjálms – „Ekkert er fjær sanni“

Eyjan
23.10.2019

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur ekki sparað stóru orðin í garð Landsvirkjunar undanfarin misseri, en hann segir hátt orkuverð Landsvirkjunar til stórnotenda rafmagns á Grundartanga vísvitandi gert til að „slátra“ þeim fyrirtækjum, svo réttlæta megi lagningu sæstrengs til landsins, til sölu á umframorku. Þá segir hann einnig að hátt orkuverð leiði til lægri launa Lesa meira

Vilhjálmur um forstjóra Landsvirkjunar – „Laug hann vísvitandi að íslensku þjóðinni“

Vilhjálmur um forstjóra Landsvirkjunar – „Laug hann vísvitandi að íslensku þjóðinni“

Eyjan
18.10.2019

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ, hefur átt í stappi við Landsvirkjun undanfarin misseri. Hann segir að nýir raforkusamningar muni hækka kostnað raforku til Norðuráls og Elkem á Grundartanga um fimm milljarða á ári, en til samanburðar sé það 75% af öllum greiddum auðlindagjöldum í sjávarútvegi árið 2019. Þá sé Landsvirkjun að þvinga Lesa meira

Neita að upplýsa um kostnað og Vilhjálmur Birgis er brjálaður – „Hver gaf Landsvirkjun leyfi?!“

Neita að upplýsa um kostnað og Vilhjálmur Birgis er brjálaður – „Hver gaf Landsvirkjun leyfi?!“

Eyjan
09.10.2019

„Er ekki rétt að byrja á því að spyrja hver gaf Landsvirkjun leyfi til að eyða jafnvel stórum upphæðum í að kanna undirbúning á lagningu á sæstreng til Íslands, sérstaklega í ljósi þess að nánast allir stjórnmálaflokkar hafa talað um að ekki standi til að leggja sæstreng hingað til lands?“ spyr Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Lesa meira

Nú sýður á Vilhjálmi sem sakar útgerðarmenn um lögbrot: „Íslenskur sjávarútvegur hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar“

Nú sýður á Vilhjálmi sem sakar útgerðarmenn um lögbrot: „Íslenskur sjávarútvegur hefur skilið eftir sig slóð eyðileggingar“

Eyjan
03.10.2019

Það sýður á Vilhjálmi Birgissyni, formanni Verkalýðsfélags Akraness og varaforseta ASÍ, en líkt og kunnugt er var 60 starfsmönnum Ísfisks sagt upp á Akranesi í vikunni. Vilhjálmur vandar sjávarútveginum ekki kveðjurnar og segir nánast öll þorp hafa orðið fyrir barðinu á græðginni og bendir á að störfum í fiskvinnslu hafi fækkað um 6700 manns á Lesa meira

Vilhjálmur Birgisson: „Annað eins rugl hef ég nú ekki heyrt lengi“

Vilhjálmur Birgisson: „Annað eins rugl hef ég nú ekki heyrt lengi“

Eyjan
26.09.2019

„Annað eins rugl hef ég nú ekki heyrt lengi og nú á að reyna að kenna lífskjarasamningum um að hafa leitt til fleiri uppsagna en fall WOW air,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ, en líkt og Eyjan greindi frá í morgun hefur fleira fólki verið sagt upp störfum vegna nýrra kjarasamninga Lesa meira

Vilhjálmur um álframleiðslu á Íslandi: „Okkar stærsta framlag til umhverfismála“

Vilhjálmur um álframleiðslu á Íslandi: „Okkar stærsta framlag til umhverfismála“

Eyjan
25.09.2019

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ, segir betur komið fyrir jörðinni að ál sé framleitt á Íslandi heldur en annarsstaðar, þar sem notast sé við endurnýjanlega orkugjafa hér á landi, meðan mengandi orkugjafar yrðu notaðir annarsstaðar við framleiðsluna: „Værum við að leggja loftlagsvanda heimsins lið með því að nýta ekki okkar vistvænu grænu Lesa meira

Vilhjálmur Birgis: „Mikilvægt að allir umhverfissinnar átti sig á þessari mynd – Ég er bara að benda á hræsnina“

Vilhjálmur Birgis: „Mikilvægt að allir umhverfissinnar átti sig á þessari mynd – Ég er bara að benda á hræsnina“

Eyjan
23.09.2019

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og varaforseti ASÍ, vekur athygli á vægi millilandaflugs þegar kemur að losun koltvísýrings (CO2)  en losun flugvéla er meira en álvera, fiskiskipaflotans og bílaflotans til samans. Hræsni í gagnrýni Vilhjálmur telur mikilvægt að umhverfissinnar átti sig á þessum hlutföllum, þar sem ekki sé eins mikil „stemmning“ hjá þeim að mótmæla Lesa meira

Vilhjálmur svarar Þorsteini: „Þegar menn eru komnir á þing þá kveður við annan tón!“

Vilhjálmur svarar Þorsteini: „Þegar menn eru komnir á þing þá kveður við annan tón!“

Eyjan
05.09.2019

Eyjan fjallaði í gær um afstöðu Vilhjálms Birgissonar, formanns Verkalýðsfélags Akraness og varaforseta ASÍ, til Landsvirkjunar, sem hann segir þvinga raforkuverð til stóriðjunnar í hæstu hæðir í skjóli einokunar, sem þannig ógni atvinnuöryggi þúsunda starfsmanna þar sem stóriðjan hafi ekki efni á slíkum hækkunum. Kveður við annan tón Sagði hann þingmanninn Þorstein Víglundsson vera „lýðskrumara“ Lesa meira

Vilhjálmur Birgis baunar á Viðreisn: „Ef þetta er ekki lýðskrum þá veit ég ekki hvað!“

Vilhjálmur Birgis baunar á Viðreisn: „Ef þetta er ekki lýðskrum þá veit ég ekki hvað!“

Eyjan
04.09.2019

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur  áður viðrað áhyggjur sínar af atvinnuöryggi og lífsviðurværi starfsmanna í orkufrekum iðnaði, vegna „græðgisvæðingarstefnu“ Landsvirkjunar. Hann segir fyrirtækið þvinga raforkuverð til stóriðjufyrirtækja í hæstu hæðir í skjóli einokunar, sem ógni atvinnuöryggi þúsunda starfsmanna. Nefnir hann nýlega raforkusamninga sem gerðir voru við Norðurál og Elkem á Grundartanga, sem hækki verðið Lesa meira

Vilhjálmur krefst opinberrar rannsóknar: „Stórútgerðir hafa fengið að komast upp með það ár eftir ár“

Vilhjálmur krefst opinberrar rannsóknar: „Stórútgerðir hafa fengið að komast upp með það ár eftir ár“

Eyjan
29.08.2019

„Hugsið ykkur að stórútgerðir hafa fengið að komast upp með það ár eftir ár að greiða langtum lægra fiskverð á uppsjávarafla en t.d. Norðmenn greiða og munar hér gríðarlegum upphæðum,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, á Facebook í dag. Hann fjallar þar um fiskverð og hvernig útgerðin hafi komist upp með að ákveða verðið Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af