Mynd
Keyrði á móti rauðu ljósi á Suðurlandsbraut með hryllilegum afleiðingum - Bilaður ljósastaur ekki lagfærður strax eftir slysið
Meginorsök banaslyss sem varð í desember á síðasta ári, þegar ekið var á aldraða konu sem var á gangi yfir Suðurlandsbraut, var að ökumaðurinn ók á móti rauðu ljósi. Það hafði einnig sitt að segja að ökumaðurinn viðurkenndi að hann hefði ekki verið með fulla athygli við aksturinn.