Segir að lítil virðing sé borin fyrir Pútín en margir óttist hann
FréttirFyrir nokkrum árum lét Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, breyta stjórnarskrá landsins á þann veg að hann getur í raun setið sem forseti til 2036. Ef svo fer þá verður hann orðinn 84 ára þegar hann lætur af embætti. „Það getur farið svo, óháð því hvernig stríðinu lýkur, en ef Pútín tapar því eða virðist vera að tapa því, þá er Lesa meira
Nýju loftvarnarkerfin eru „höfuðverkur fyrir Pútín“
FréttirÚkraínski herinn hefur fengið góðar fréttir síðustu daga. Bandalagsríki Úkraínu hafa ákveðið að senda fullkominn loftvarnarkerfi til landsins í kjölfar harðra árása Rússa á borgir í landinu. Hafa þeir látið stýriflaugum og öðrum flugskeytum rigna yfir borgirnar. Nú þegar er Iris-T SML loftvarnarkerfi frá Þýskalandi komið til Úkraínu en það er eitt fullkomnasta loftvarnarkerfið sem til er í Lesa meira
Úkraínumenn söfnuðu 10 milljónum dollara á 24 klukkustundum til að kaupa sjálfsvígsdróna
FréttirÍ kjölfar þess að Rússar skutu tugum stýriflauga á úkraínskar borgir á mánudaginn tóku Úkraínubúar höndum saman og hófu fjársöfnun til að kaupa sjálfsvígsdróna fyrir úkraínska herinn. Á tæpum sólarhring söfnuðust tæplega 10 milljónir dollara. The Guardian segir að alls hafi 9,6 milljónir dollara safnast til að kaupa 50 Ram II dróna sem eru ómannaðir drónar sem bera 3 kíló af sprengiefni. Þeir eru hannaðir Lesa meira
NATO segir að Rússar séu að verða uppiskroppa með stýriflaugar
FréttirRússar hafa notað „stóran hluta“ af stýriflaugum sínum og öðrum flugskeytum. Vegna refsiaðgerða Vesturlanda eiga þeir erfitt með að halda framleiðslu á skotfærum og vopnum í gangi. Sky News segir að þetta hermi leyniþjónustuupplýsingar NATO og hefur það eftir embættismönnum hjá bandalaginu.
Segir að ef rússneski herinn hrynji saman verði heimurinn að vera undir kjarnorkustríð búinn
FréttirHeimurinn verður að vera undir kjarnorkustríð búinn ef rússneski herinn hrynur. Þetta segir Sir Richard Shirreff, hershöfðingi og fyrrum næst æðsti yfirmaður herafla NATO í Evrópu. The Sun skýrir frá þessu og segir að Shirreff hafi hvatt Vesturlönd til að halda áfram að beita Vladímír Pútín, Rússlandsforseta, þrýstingi. Hann sagðist telja að það stefni í algjört hrun rússneska hersins en það yrðu þá mestu hörmungar rússneska Lesa meira
Segir að Rússar hafi misst 90.000 hermenn
FréttirRússar hafa misst 90.000 hermenn í stríðinu í Úkraínu. Talan nær yfir fallna hermenn, horfna og þá sem geta ekki lengur barist vegna líkamstjóns. Það er óháði rússneski miðillinn Medusa sem skýrir frá þessu og vitnar meðal annars í heimildarmann innan rússnesku leyniþjónustunnar FSB. Samkvæmt síðustu opinberu tölum frá rússneskum yfirvöldum, sem voru birtar í lok september, þá hafa 5.937 Lesa meira
Þýskt loftvarnarkerfi komið til Úkraínu
FréttirÚkraínski herinn hefur fengið Iris-T loftvarnarkerfi frá Þýskalandi. Þetta er mjög fullkomið kerfi sem getur varið heila borg. Þýska ríkisstjórnin skýrði frá þessu að sögn Norska ríkisútvarpsins. Þegar Christine Lambrecht, varnarmálaráðherra Þýskalands, heimsótti Odesa í byrjun mánaðar lofaði hún að fyrsta Iris-T loftvarnarkerfið yrði afhent innan „nokkurra daga“. Þegar hún mætti til fundar varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna í gær sagði hún að afhending loftvarnarkerfisins væri Lesa meira
Vesturlönd sögð hafa sagt Rússum hver viðbrögðin við kjarnorkuárás verða
FréttirFulltrúar aðildarríkja NATO hafa sett sig í samband við rússneska embættismenn til að vara þá við að grípa til kjarnorkuvopnanotkunar í Úkraínu. Þeir eru sagðir hafa sagt þeim hver viðbrögð Vesturlanda verði ef svo illa fer. Sky News skýrir frá þessu og hefur eftir Michael Clarke, prófessor og fyrrum forstjóra Royal United Services Institute. Þegar hann var spurður hver viðbrögð Vesturlanda myndu vera við Lesa meira
14 ára gömul upptaka setur rússneskan áróðursmeistara í vanda – „Það sem meira er, ég get ekki ímyndað mér meiri glæpamann“
FréttirMyndband hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum síðustu klukkustundir af Vladimir Solovyov, áróðursmeistara Kremlverja, þar sem hann ræddi við áhorfendur í rússnesku leikhúsi fyrir 14 árum. Þá sagði hann að það að fara í stríð við Úkraínu „væri versti glæpurinn sem hægt sé að ímynda sér“. Á upptökunni heyrist Solovyov, sem er harður stuðningsmaður Pútíns, segja að það verði „aldrei“ Lesa meira
Biden segir að Pútín sé venjulega skynsamur en hafi misreiknað sig – Bandaríkin leita að „afrein“ fyrir hann
FréttirHvað viðkemur stríðinu í Úkraínu þá misreiknaði Pútín sig að mati Joe Biden, Bandaríkjaforseta. Hann segist telja að Pútín sé venjulega skynsamur en hafi misreiknað sig illilega varðandi möguleikann á að hernema Úkraínu. Þetta sagði Biden í viðtali við CNN í gær. „Ég held að hann sé skynsamur maður sem hafi misreiknað sig illilega,“ sagði Biden um Pútín. Nýlega sagði Biden að bandarísk stjórnvöld væru að leita eftir „afrein“ fyrir Pútín svo hann geti Lesa meira