Mynd
Mikil reiði eftir að meintur þjófur var snoðaður
Mikil reiði er í Tælandi eftir að barþjónn í höfuðborginni Bangkok fékk nóg og rakaði allt hárið af konu sem ætlaði að stinga undan frá háum reikningi. Atvikið átti sér stað í Pinklao-hverfinu í Bangkok í síðustu viku og hefur myndband þar sem hárið er rakað af konunni vakið hörð viðbrögð.