Vildi ógilda kosningarnar í Reykjavík vegna myndbirtingar á RÚV
Úrskurðarnefnd kosningamála hefur hafnað kröfum ónefnds manns um að kosningar til borgarstjórnar Reykjavíkur sem fram fóru fyrir 10 dögum yrðu ógiltar vegna myndbirtingar af ógildum kjörseðli í kosningasjónvarpi RÚV.
Maðurinn lagði fram kæru til nefndarinnar daginn eftir kosningar.