Óttar Guðmundsson skrifar: Heitirðu Óttar?
EyjanFastir pennarÉg fæddist í Reykjavík skömmu eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Í fyllingu tímans var ég skýrður af sr. Jóni Thorarensen. „Hvað á barnið að heita?“ Óttar var svarið. Klerkur hváði enda var nafnið óvenjulegt á þessum tíma. Hann skráði í skírnarvottorðið að drengurinn héti Othar að norskum sið. Faðir minn leiðrétti þetta en lét prestinn skrá Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra lykkjumálið
EyjanFastir pennarSigurður skáld Breiðfjörð dvaldist um þriggja ára skeið í Grænlandi á 19. öldinni. Hann lýsir samskiptum hrokafullrar herraþjóðar við undirsáta sína. Danir litu niður á Grænlendinga sem barnalegt og óþroskað fólk sem hafa þyrfti vit fyrir. Þegar ég dvaldist í Kaupmannahöfn á árum áður kynntist ég vel þessari neikvæðu afstöðu Dana til Grænlendinga. Nýlega var Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Feimnismál
EyjanFastir pennarNýlega birtust í fjölmiðlum fregnir af Birni Borg tennishetju. Á Svíþjóðarárum mínum var Björn þjóðhetja og tákn norrænnar karlmennsku. Hann var langur og mjór með sítt ljóst hár og ennisband. Hljótt hefur verið um kappann þar til greint var frá því að hann hefði um árabil barist við krabbamein í blöðruhálskirtli og kókainfíkn. Fullorðnir karlmenn Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Blús á brautarpalli
EyjanFastir pennarHallfreðar saga vandræðaskálds fjallar um ungt skáld í krónískri tilvistarkreppu. Hann elskar Kolfinnu en tekst aldrei að raungera þá ást. Hún giftist öðrum og Hallfreður harmar hana allt sitt líf. Ævi hans einkennist af vonbrigðum og mikilli beiskju. Ég finn fyrir andlegum skyldleika með Hallfreði og fleiri óhamingjusömum skáldum sem flæktu líf sitt með vafasömum Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Velkominn herra skattstjóri!
EyjanFastir pennarNýlega var tilkynnt að hinn umdeildi Dónald Trump væri að losa sig við liðónýtan skattstjóra, Billy Long að nafni með því að gera hann að sendiherra á Íslandi. Margir heilagir og góðgjarnir Íslendingar fylltustu réttlátri reiði og sögðu það til skammar að fá mann þennan til Íslands. Starfsferill og pólitísk afskipti hans voru rakin og Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Upp með Njálu
EyjanFastir pennarUm þessa helgi er haldin Njáluhátíð í Rangárþingi undir slagorðinu „Upp með Njálu.“ Á opnunarkvöldinu að Hvolsvelli var ný söguskoðun áberandi. Hallgerður langbrók hefur nú endanlega fengið uppreisn æru. Ekki er lengur litið á hana sem kvendjöful heldur sterka og sjálfstæða konu í miskunnarlausu karlaveldi. Hún á engan möguleika í hjónabandi sínu við Gunnar Hámundarson Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Arfleifð Egils í Borgarnesi
EyjanFastir pennarVið Jóhanna kona mín erum á árlegu ferðalagi okkar um landið. Við leigjum venjulega sumarbústað læknafélaganna þar sem við höfum bækistöð í eina viku. Á daginn keyrum við um næsta nágrenni, förum í sund, hneykslumst á erlendum ökumönnum, etum vondar pylsur og förum á slóðir Sturlunga. Ég felli tár yfir grimmum afdrifum frænda minna á Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Minnisleysi ráðherrans
EyjanFastir pennarHrumleiki og elliglöp eru meðal fjölmargra yrkisefna Hávamála: Óminnishegri heitir sá er yfir öldrum þrumir. Hann stelur geði guma. Gleymska hrellir aldraða og stelur persónuleika þeirra. Þetta vita allir sem hafa umgengist gamalt fólk með minnistruflanir. En fleiri hliðar eru á minnisleysi en óminnishegrinn. Gerpla Halldórs Laxness fjallar um skáldið Þormóð Bessason Kolbrúnarskáld og ódauðlegt Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
EyjanFastir pennarEin helsta kvörtun fólks hjá geðlæknum er lífsleiði og tilbreytingarleysi tilverunnar. Lífið líður hratt hjá og dagarnir eru næsta keimlíkir. Margir eiga þó því láni að fagna að upplifa einstök glæsileg andartök í eigin lífi sem „lýsa eins og leiftur um nótt.“ Mér kemur í hug þýski knattspyrnumaðurinn Jurgen Sparwasser. Hann var leikmaður austurþýska landsliðsins Lesa meira
Óttar Guðmundsson skrifar: Æskuást
EyjanFastir pennarÁ dögunum lést úti í Ameríku leik- og söngkonan Connie Francis. Þessi frétt vakti litla athygli enda var Connie orðið gömul kona og flestum gleymd. Mér var þetta áfall enda var Connie fyrsta ástin í mínu lífi. Unglingaherbergið á æskuheimili mínu við Bergstaðastræti var þakið myndum af Connie úr þýska tímaritinu Bravó. Hún vakti mig Lesa meira
