fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026

Sigmundur Ernir

Sigmundur Ernir skrifar: Svona semja bændur við ESB

Sigmundur Ernir skrifar: Svona semja bændur við ESB

EyjanFastir pennar
14.02.2026

Þær sérlausnir sem Íslendingum munu bjóðast í samningaviðræðum við Evrópusambandið verða ekki aðeins fjölmargar, heldur munu þær verða lyftistöng fyrir allt atvinnulíf og menningu hér á landi, og efla samkeppni og neytendavernd til muna. Eru þá ónefndir boðlegir vextir, ásamt gjaldmiðli til útflutnings, sem einn og sér mun líklega spara þjóðarbúinu um 500 milljarða á Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Palestína er Víetnam okkar kynslóðar

Sigmundur Ernir skrifar: Palestína er Víetnam okkar kynslóðar

EyjanFastir pennar
07.02.2026

Þær blóðugu og gegndarlausu þjóðernishreinsanir sem nú viðgangast jafnt á Gasa og Vesturbakkanum fyrir botni Miðjarðarhafs hafa augljósan og raunar yfirlýstan tilgang af hálfu stjórnvalda í Ísrael; að koma heimamönnum þaðan á burt, hverjum og einasta, lífs eða liðnum, á að giska sjö milljónum manneskja, og eru þá átta milljónir palestínskra flóttamanna ótaldar, sem fá Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

Sigmundur Ernir skrifar: Nú skal sótt að kvenfrelsinu

EyjanFastir pennar
31.01.2026

Sú kokkálaða karlremba sem gnístir nú tönnum á kringlu jarðar þráir ekkert heitar en gamla sáttmálann um yfirburði sterka mannsins. Það beri að víkja fjölbreytileikanum í skiptum fyrir einsleitnina sem fyrrum gerði samfélag manna svo ofurmáta fyrirséð, en þá hafi nú allt verið reglufastara og rígskorðaðra eins og það má heita í ansi aumu endurlitinu. Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaðan stingur höfðinu í sandinn

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaðan stingur höfðinu í sandinn

EyjanFastir pennar
24.01.2026

Það er mikilvægt að vera afdráttarlaus og skýr á þeim óreiðutímum sem nú eru uppi á kringlu jarðar. Og líklega er aldrei eins brýnt að standa í lappirnar og þegar sótt er að helstu gildum lýðfrjálsra þjóða. Um þetta snýst orðræðan í stjórnmálum okkar daga. Annað tveggja er að rísa upp úr rykinu sem þyrlað Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Af óttanum skulið þið þekkja þá

Sigmundur Ernir skrifar: Af óttanum skulið þið þekkja þá

EyjanFastir pennar
17.01.2026

Andstæðingar mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu þrástagast á því að um ekkert verði að semja af Íslands hálfu þegar sest verður við samningaborðið á meginlandi álfunnar. Þeir minna um margt á manninn sem þurfti á tjakki að halda eftir að sprungið hafði á dekki á bíl hans úti á landi, en hann varð svo svartsýnn Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Hafa skal það sem ljótara reynist

Sigmundur Ernir skrifar: Hafa skal það sem ljótara reynist

EyjanFastir pennar
10.01.2026

Fjögurra hæða viðbygging við Hótel Akureyri í Hafnarstræti 75 var nýverið valin fegursta nýbyggingin á síðasta ári af áhugafólki um framtíð arkitektúrs hér á landi. Hópurinn kveðst vilja gera uppreisn gegn þeirri einhæfu húsagerð sem blasir við landsmönnum – og kenna má við módern – og segir að útlit byggða sé mál allra sem landið Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Þrjár vondar hugmyndir

Sigmundur Ernir skrifar: Þrjár vondar hugmyndir

EyjanFastir pennar
03.01.2026

Það hefur löngum verið vitað að frjálslyndum og þróttmiklum lýðræðisríkjum, sem leggja áherslu á jöfnuð og samneyslu, hefur farnast best í heimi hér. Það er einfaldlega mælanlegt, svo sem á kvarða efnahags og lýðheilsu, en einnig framsækni og frumkvæðis, að ekki sé talað um friðar og öryggis. Og tvímælin eru engin. Þessi eftirsóknarverðustu samfélög jarðarinnar Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Það þarf tekjur til að byggja upp samfélag

Sigmundur Ernir skrifar: Það þarf tekjur til að byggja upp samfélag

EyjanFastir pennar
20.12.2025

Í huga afturhaldssamra hægrimanna – og jafnvel líka í þönkum forhertustu frjálshyggjumannanna – er vart eða ekki hægt að tala um samfélög, og frægar eru yfirlýsingar þeirra í þá veru að þjóðir séu ekki til, og þar af leiðandi geti þær ekki átt neitt saman. Mannheimar séu samsafn einstaklinga og megi ekki heita flóknari en Lesa meira

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

Sigmundur Ernir skrifar: Bandaríkin lyfta löngutöng

EyjanFastir pennar
13.12.2025

Það gliðnar á milli Ameríkuflekans og þess evrópska sem aldrei fyrr, en ekki bara í landfræðilegum skilningi, eins og löngum fyrr og síðar, heldur í þeim pólitíska, svo hriktir í og skelfur um allar jarðir. Bandaríkin hafa sagt skilið við lýðræði og mannréttindi. Forysturíki vestrænnar samvinnu hefur yfirgefið gildi sín og snúið sér að aðþrengdri Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af