Svona slapp Samherji við kastljós skattayfirvalda
EyjanSamkvæmt samningi um alþjóðleg skattalög sem Ísland er aðili að, þurfa stórfyrirtæki með yfir 750 milljóna evra heildartekjur á ári, að veita skattayfirvöldum víðtækar upplýsingar um fjármál sín í öllum þeim löndum sem þau starfa, í ítarlegri skýrslu. Til dæmis um fjárhæð hagnaðar fyrir tekjuskatt, tekjuskattsgreiðslur í öllum löndum sem fyrirtækið starfar í, skráð hlutabréf Lesa meira
Siðfræðingur um Kristján Þór: „Ekkert annað að gera en að fjarlægja sig frá þessu hlutverki”
EyjanSiðfræðingurinn Henry Alexander Henrysson sagði í Kastljósi í gær að þar sem trúverðuleiki Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútegsráðherra, hefði beðið hnekki í Samherjamálinu, þyrfti hann að stíga frá til að efla traust: „Mér finnst sjávarútvegsráðherra ekki hafa náð að svara þeim spurningum sem beint hefur verið til hans nú í umræðunni. Hefur trúverðugleiki hans borið hnekki? Lesa meira
ASÍ: „Starfsfólk Samherja er ekki ábyrgt fyrir hegðun stjórnar og annarra stjórnenda“
Eyjan„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir með öllu því arðráni sem afhjúpað var í umfjöllun Kveiks og Stundarinnar í síðustu viku og skipulagðri spillingu þar sem auðlindir fátækrar þjóðar eru misnotaðar,“ segir í ályktun frá miðstjórn ASÍ. Þar eru starfsaðferðir Samherja í Namibíu fordæmdar: „Það er hrollvekjandi að sjá hvernig Samherji virðist hafa nýtt sér árangursríkt þróunarstarf Lesa meira
Sigmar sakar ráðherra um vanþekkingu eða vísvitandi aðför: „Má segja að Kristján sé ekki samherji svínabænda“
EyjanSigmar Vilhjálmsson, talsmaður félags svína-, eggja- og kjúklingabænda (FESK), segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, annaðhvort illa gefinn eða hafi illt í hyggju gagnvart svínabændum og hygli sjávarútvegi umfram landbúnaði. Ástæðan sé ný búvöru- og tollalög sem Kristján hefur lagt fram: „Kristján Þór Júlíusson hefur lagt fram ný búvörulög og tollalög. Annað hvort hefur hann Lesa meira
Kristján Þór fer fyrir spillingarrannsókn gegn mútum og peningaþvætti í kjölfar Samherjamálsins
EyjanKristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs – og landbúnaðarráðherra, hefur öðrum ráðherrum fremur dregist inn í Samherjamálið sökum vináttu sinnar við Þorstein Má Baldvinsson, fyrrverandi forstjóra Samherja. hafa þingmenn kallað eftir afsögn, eða að hann stigi til hliðar meðan að málið sé rannsakað. Kristján skrifar í Morgunblaðið í dag, hvar hann nefnir að auka þurfi traust á Lesa meira
Borgarstjóri bölvar Mogganum og segir Eyþór tvísaga: „Stendur Eyþór ennþá í skuld við Samherja ?“
EyjanDagur B. Eggertsson, borgarstjóri, skrifar opna færslu á Facebook í dag hvar hann krefst svara frá Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins, og Samherja, vegna eignarhlutar Eyþórs í Morgunblaðinu sem var að hluta fjármagnaður af Samherja. Hefur helmingshlutur þess láns þegar verið afskrifaður í bókum Samherja. Borgarstjóri segir ótal spurningum ósvarað: „Af hverju fór Eyþór með hlut Lesa meira
Sjáðu hvernig ríkisstjórnin ætlar að bregðast við Samherjamálinu vegna „hugsanlegs orðsporshnekkis“
EyjanRíkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að grípa til eftirfarandi aðgerða í því skyni að auka traust á íslensku atvinnulífi, sem talið er að hafi beðið álitshnekki eftir Samherjamálið og skráningu Íslands á gráan lista FATF. Aðgerðirnar eru eftirfarandi: 1. Auka gagnsæi í rekstri stærri óskráðra fyrirtækja Undirbúningur er hafinn að lagafrumvarpi um ríkari Lesa meira
Samherjaskjölin: Telur sig vita af hverju Jóhannes uppljóstrari var rekinn frá Samherja
EyjanSem kunnugt er þá er helsta heimildin í Samherjamálinu Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarmaður Samherjafélaganna í Namibíu, sem ákvað að stíga fram með þær upplýsingar sem varða meintar mútugreiðslur Samherja í Afríku til að komast yfir kvóta, ásamt mögulegum brotum á skattalögum. Lét hann Wikileaks í té um 30 þúsund skjöl sem kallast Samherjaskjölin Lesa meira
Sósíalistar um Samherjamálið: „Auðvaldið rífur niður samfélagið. Sósíalisminn byggir það upp“
EyjanSósíalistafélag Íslands hefur sent frá sér ályktun vegna Samherjamálsins. Í henni er sósíalismi sagður vera svarið við arðráni auðvaldsins og svikum elítunnar gagnvart alþýðunni. Ályktunin er eftirfarandi: Allar stjórnir Sósíalistaflokks Íslands samþykktu eftirfarandi ályktun í kvöld: Í tilefni af afhjúpun á glæpum Samherja í Namibíu og hvernig eigendum fyrirtækisins hefur tekist að sölsa undir sig Lesa meira
Samherji vildi eyða út athugasemdum í skýrslu KPMG – Þorsteinn Már sagður einráður
EyjanÍ dag kom út bókin Ekkert að fela – Á slóð Samherja í Afríku, eftir þá Helga Seljan, Aðalstein Kjartansson og Stefán Aðalstein Drengsson, sem fjallar nánar um Samherjamálið og starfsemi fyrirtækisins í Afríku. Í bókinni er sagt frá því að engin raunveruleg framkvæmdastjórn hafi verið hjá fyrirtækinu, þar sem Þorsteinn Már, forstjóri og stór Lesa meira
