Guðmundur Árni útilokar ekki varaformannsframboð
EyjanGuðmundur Árni Stefánsson, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, útilokar ekki framboð til varaformanns í Samfylkingunni. „Ég bíð bara á hliðarlínunni og legg jafnaðarmönnum allt til sem ég get. Það er einfaldlega þannig, en ég hef engin áform um þetta. Ef ég get hjálpað til þarna eða annars staðar þá geri ég það,“ svaraði hann þegar Morgunblaðið Lesa meira
Dagur fer ekki í formannsslaginn – Kristrún sögð ætla að tilkynna framboð á morgun
EyjanDagur B. Eggertsson, borgarstjóri, ætlar ekki að bjóða sig fram til embættis formanns Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins í október en þá verður kosið um arftaka Loga Einarsson. Dagur útilokar hins vegar ekki þátttöku í landsmálum. Kristrún Frostadóttir, þingmaður, sem hefur verið orðuð við formannsframboð, mun að sögn boða til fundar með stuðningsfólki sínu á morgun Lesa meira
Staksteinar segja að Dagur B. Eggertsson hafi verk að vinna á landsvísu
EyjanStaksteinar Morgunblaðsins fjalla um Dag B. Eggertsson, borgarstjóra, í dag og framtíðaráætlanir hans og segja að hann hafi verk að vinna á landsvísu. Segir í upphafi að hrafnar Viðskiptablaðsins, Huginn og Muninn, hafi í síðustu viku talið sig sjá merki um að Dagur sé farinn að ókyrrast en þá skrifuðu þeir: „Það dró til tíðinda Lesa meira
„Eyþór Arnalds getur haldið áfram að vona en staða hans virðist nánast vonlaus“
EyjanKolbrún Bergþórsdóttir skrifar leiðara Fréttablaðsins í dag þar sem hún fjallar um borgarmálin og komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún víkur að Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna, og Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar og borgarstjóra, í leiðaranum sem ber fyrirsögnina „Eina Trompið“. Hún byrjar á að skrifa um Eyþór Arnalds sem lýsti því nýlega yfir að hann vilji leiða Lesa meira
Kolbrún vill að vinstri menn verði skemmtilegri – Vonar að Brynjar haldi áfram á þingi
EyjanFréttablaðið birtir í dag pistil eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur þar sem hún fjallar um prófkjör Sjálfstæðismanna um síðustu helgi, ákveðna frambjóðendur og vinstri flokkana. Hún segir að prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hafi fengið mikla athygli. „Áhuginn var svo brennandi að engu var líkara en það varðaði þjóðarhag hvort Guðlaugur Þór Þórðarson eða Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hreppti fyrsta sætið,“ Lesa meira
Heiða Björg sögð vilja á þing
EyjanHeiða Björg Hilmisdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar hafði gefið út að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram til þings og baðst hún undan þátttöku í skoðanakönnun um frambjóðendur, meðal flokksmanna. En nú hefur henni að sögn snúist hugur. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Segir blaðið að þau boð hafi borist til uppstillingarnefndar í Reykjavík að Heiða bjóði Lesa meira
Vinstri græn og Miðflokkurinn tapa fylgi – 40% styðja ríkisstjórnina
EyjanSamkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið í lok síðustu viku þá tapa Vinstri græn og Miðflokkurinn fylgi. Fylgi ríkisstjórnarinnar mælist 40,8% og hefur ekki verið svo lítið síðan í janúar á þessu ári þegar það mældist rúmlega 35%. Það er fylgi Vinstri grænna sem dregur fylgi ríkisstjórnarinnar niður. Flokkurinn hefur yfirleitt mælst með Lesa meira
Helga Vala vill verða varaformaður Samfylkingarinnar
EyjanHelga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill verða varaformaður Samfylkingarinnar. Hún hefur tilkynnt framboð sitt til varaformanns á landsfundi flokksins í nóvember. Hún segist finna fyrir síauknum áhuga á Samfylkingunni og að nýtt fólk á öllum aldri sé að ganga til liðs við flokkinn. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Haft er eftir Helgu Völu að Lesa meira
Segir Guðmund Andra ekki ganga í takt: „Held að almennt séu þingmenn flokksins fylgjandi“
Eyjan„Núverandi ríkisstjórn okkar Íslendinga hefur verið að treysta böndin við þetta herveldi, jafnvel búa í haginn fyrir endurkomu ameríska hersins. Það finnst mér hættuspil; við eigum að fjarlægja okkur bandarískum hagsmunum eins og við mögulega getum, jafnvel að íhuga úrsögn úr Nató meðan Bandaríkjamenn eru þar svo fyrirferðarmiklir,“ segir Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Lesa meira
Björn Bjarnason: „Þetta er réttnefnd pólitísk spilling“
EyjanBjörn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fjallar um kreppu jafnaðarmennskunnar í pistli sínum í dag. Fer hann yfir útreið breska Verkamannaflokksins á dögunum, sem var sú versta í 80 ár og nefnir einnig að jafnaðarmannaflokkar í Þýskalandi og á Norðurlöndunum séu í tilvistarvanda, jafnvel þótt þeir séu í ríkisstjórn. Þá nefnir Björn að Sjálfstæðisflokkurinn gegni mikilvægu hlutverki Lesa meira