Hver borgar?
EyjanRíkissjóður tekur á sig 300 milljarða króna skuld vegna lána Seðlabankans til fjármálafyrirtækja. Segir í þessari frétt. Þetta eru engir smáaurar. Næstum tvær og hálf Kárahnjúkavirkjun. Svo stórar upphæðir að maður skilur þetta ekki. Gjörninginn skilur maður ekki heldur. Hver mun þurfa að borga þetta á endanum?
Flugumaður í bankanum
EyjanHvað á maður að segja? Tryggvi Jónsson sagði ósatt – að hann hefði hvergi komið nálægt fyrirtækjum sem tengdust Baugi. Og stjórnendur Landsbankans létu þetta viðgangast. Það er varla hægt að líta öðruvísi á en að þau hafi verið með í plottinu.
Sögulegt plagg
EyjanÞetta er hreint stórkostlegur bæklingur, tímarit Landsbankans á ensku, meðal annars með kynningu á Icesave í Hollandi og miklum yfirlýsingum um hvað þetta sé allt traust. Glansmyndum af Sigurjóni Árnasyni, Halldóri J. Kristjánssyni, Brynjólfi Helgasyni, Björgólfi Guðmundssyni og Kjartani Gunnarssyni. Og sérstöku gæðavottorði frá Jóni Sigurðssyni, stjórnarformanni Fjármálaeftirlitsins. Smellið hér: landsbanki-islands.pdf
Bréf um krónubrask, korktappa og vaxandi skuldabyrði
EyjanÁttum við þetta skilið? Eins og hefur komið í ljós þá tóku stærstu bankarnir gríðarlega stöðu gegn krónunni og áttu stærstan hluta í geysilegu falli hennar. Einn stærsti eigandi KB banka, Ólafur Ólafs tók 680 milljóna evra stöðu gegn krónunni sjálfur í gegnum sitt einkahlutafélag, Kjalar. Hjörleifur hjá Kjalar sagði að ef þeir hefðu fengið Lesa meira
Næsta kynslóð útrásarvíkinga (vonandi ekki)
EyjanKári sá á vefnum að Chelsea sé kannski til sölu. – Pabbi, getum við keypt Chelsea? – Ég held við getum það ekki. – Þú átt að reyna að kaupa Chelsea. – Ég hef ekki efni á því. – Þá kaupi ég Chelsea. – Hvað átt þú mikinn pening? Hann nær í sparibaukana sína tvo. Lesa meira
Ókindin
EyjanMaður verður alltaf meira og meira hissa. Það hefur verið farið í alla sjóði á Íslandi og þeir tæmdir. Slegin lán út á framtíðina eins og enginn væri morgundagurinn. Hagnaður margra ára eða áratuga tekinn út fyrirfram. Ég hitti mann á förnum vegi sem sagði að þetta sýndi að Íslendingar væru lélegir búmenn. En þarna Lesa meira
Stöndum vörð um nefndina
EyjanVið eigum að standa vörð um þessa rannsóknarnefnd. Veita henni upplýsingar. Fylgjast vel með störfum hennar. Gera miklar kröfur til hennar. Sjá til þess að hún hafi góða aðstöðu til að vinna störf sín. En við eigum að passa okkur á stjórnmálamönnum sem telja sig ekki þurfa að axla neina ábyrgð fyrr en nefndin lýkur Lesa meira
Nýja er eins og gamla
EyjanTeitur Atlason sem heldur úti vefsíðunni Eimreiðinni birtir þetta skipurit af Nýja Landsbankanum. Merkilegt er að skipuritið er nánast eins og í Gamla Landsbankanum. Smellið til að stækka. Annars segja þeir sem þekkja til í bankarekstri að bankarnir séu ennþá alltof stórir miðað við það hlutverk sem þeir munu hafa næstu árin. Það fer varla Lesa meira
Þorvaldur um blaðamennsku og fjárböðun
EyjanÞorvaldur Gylfason brýnir íslenska blaðamenn til dáða í pistli í Fréttablaðinu í dag. Þar vekur hann líka máls á grunsemdum sem hafa legið í þagnargildi – um að bankarnir hafi hugsanlega stundað peningaþvætti – fjárböðun – fyrir rússneska auðmenn. Hér er niðurlag greinar Þorvaldar: „Þegar allt virtist leika í lyndi, höfðu útlendingar engan sérstakan áhuga Lesa meira
Bréf um gjaldeyrisbrask, kvótann, dómsmál og eitt um Gaza
EyjanSofandi FME Sæll … lengi skal manninn reyna!! Hversu gleymin halda stjórnvöld að almenningur sé? Sagt var: Allt upp á borðið og ekkert dregið undan! Nú þegar niðurstöður endurskoðunarfyrirtækjanna liggja fyrir segir FME annað!!!! “Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, ætlar ekkert að gefa upp um það hvort endurskoðunarfyrirtækin sem rannsökuðu Kaupþing og Landsbankann í aðdraganda Lesa meira
