fbpx
Miðvikudagur 25.febrúar 2026

Óflokkað

Kaupþing og VR

Kaupþing og VR

Eyjan
20.01.2009

Ragnar Þór Ingólfsson bloggar um einkennilega náin tengsl milli Kaupþings annars vegar og Verslunarmannafélags Reykjavíkur og Lífeyrissjóðs verslunarmanna hins vegar.

Ólafur Ólafsson, einkavæðing bankanna og pólitísk spilling

Ólafur Ólafsson, einkavæðing bankanna og pólitísk spilling

Eyjan
20.01.2009

Það þarf að rifja upp hvernig Ólafur Ólafsson auðgaðist svona mikið. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson gerðu með sér helmingaskipti sem fólu í sér að Björgólfsfeðgar – sem Davíð hafði skyndilega hrifist af (sagan segir reyndar að enn trúi hann engu illu upp á þá) – fengju Landsbankann. Þá var kastað fyrir róða fögrum fyrirheitum Lesa meira

Bréf um ónýta hagfræði, kvótann og íslenskt Survival

Bréf um ónýta hagfræði, kvótann og íslenskt Survival

Eyjan
19.01.2009

Er nokkuð búið að veðsetja Konungsbók? Hvers vegna þarf að úthluta 30 þúsund tonna aukningunni til núverandi handhafa kvótans? Maður skyldi ætla að þeir sem aðhyllast frelsi í viðskiptum væru fylgjandi því að gjaldþrota ríkissjóður leigði hæstbjóðendum þennan kvóta, og varla er svo mikið að gera í kauphöllinni að hún hafi ekki ráðrúm til að Lesa meira

Olían á Drekanum

Olían á Drekanum

Eyjan
19.01.2009

Ketill Sigurjónsson heldur úti svokölluðu Orkubloggi þar sem oft birtast fróðlegar greinar um orkumál og ýmislegt því tengt. Síðustu daga hefur hann birt tvær greinar um olíulindir á Drekasvæðinu sem eru allrar athygli verðar. Sú fyrri heitir Æpandi bjartsýni. Og sú seinni nefnist Bakkafjarðar soldánninn. Það er ýmislegt á reiki í þessum málum. Heyrst hafa Lesa meira

Þingsetning

Þingsetning

Eyjan
19.01.2009

Það er boðað til mótmæla við setningu Alþingis á Austurvelli á morgun. Í sjálfu sér ekki vitlaus aðgerð. Betra að mótmæla þegar húsið er örugglega fullt en þegar enginn er þar inni.

Landsfundurinn

Landsfundurinn

Eyjan
19.01.2009

Augu fólks fara að beinast að landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem verður haldinn í lok mánaðarins. Framsókn átti nokkuð dirfskufullan leik um helgina þegar Sigmundur Davíð var kosinn formaður. Það breytir vissulega ásýnd flokksins. Svo á eftir að koma í ljós hvernig úr rætist. Mál margra er að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi líka að sýna dirfsku á landsfundi sínum. Lesa meira

Uppeldisstöð fyrir lánabrall

Uppeldisstöð fyrir lánabrall

Eyjan
19.01.2009

Gunnar Tómasson, hagfræðingur í Washington, sendi mér þessa athugasemd. — — — Í Silfri Egils í dag komu áhugaverðar upplýsingar í ljós í máli Ingólfs Arnarsonar: kvótakerfið hefur verið nokkurs konar uppeldisstöð fyrir lánabrall útrásarvíkinga byggt á bókfærðri viðskiptavild. Við samruna fyrirtækja í sjávarútvegi hefur bókfært eigið fé verið blásið upp með óraunhæfu virðismati á Lesa meira

Að fara undan í flæmingi

Að fara undan í flæmingi

Eyjan
19.01.2009

Viðtalið við Ingimund Friðriksson seðlabankastjóra í Fréttablaðinu er eins og við mann frá brotnu heimili. Skýring hans á aðgerðaleysi stjórnvalda þegar efnahagshrun vofði yfir er svohljóðandi: „En það var svo margt sem var sagt á þessum tíma og ekki bara þetta.“ Í raun virðist þetta vera það eina sem Seðlabankinn hefur til málanna að leggja Lesa meira

Ofurskuldsettur sjávarútvegur

Ofurskuldsettur sjávarútvegur

Eyjan
18.01.2009

Sjávarúvegssérfræðingurinn Dr. Ingólfur Arnarson var í viðtali hjá mér í Silfrinu í dag. Hann hefur lengi verið viðriðinn sjávarútveg, á Íslandi, í Noregi og Bandaríkjunum meðal annars. Lýsingar hans á skuldsetningu sjávarútvegsins eru hrollvekjandi. Kvótaverð var blásið upp til að hækka efnahagsreikningana og svo var hægt að veðsetja meira. Eftir stendur atvinnugrein sem er vonlaust Lesa meira

Undarleg viðskipti

Undarleg viðskipti

Eyjan
18.01.2009

Af öllum undarlegheitunum sem er að koma upp í kringum bankahrunið, þá er mál Al Thani, bróður emírsins af Katar það furðulegasta. Það hlýtur að vera kominn tími á að opinberir aðilar sem væntanlega fara með rannsókn málsins skýri frá málavöxtum. Svona hljómar frétt Stöðvar 2 um málið: „Kaup hins konungsborna Al-Thani frá Katar á Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af