fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026

Óflokkað

Bandaríkjastjórn þrýstir á svissneska banka

Bandaríkjastjórn þrýstir á svissneska banka

Eyjan
21.02.2009

Ólafur Ágúst Guðmundsson sendi mér þetta bréf: — — — Góðan daginn http://www.spiegel.de/international/business/0,1518,608866,00.html#ref=nlint The End of Swiss Banking as We Knew it? Hrói Höttur er kominn á stjá, og hann á heima í Bandaríkjunum. Nú á að neyða Sviss til að ljóstra upp um fjárböðun ca. 50,000 bandarískra stóreignamanna í svissneskum bönkum. En hver neyðir Lesa meira

Mannval í prófkjörum

Mannval í prófkjörum

Eyjan
20.02.2009

Áhugamaður um pólitík sagði við mig í dag að þeir sem væru að bjóða sig fram til þingsetu núna væru – fyrir utan sitjandi þingmenn – að miklu leyti varaþingmenn, sveitarstjórnarmenn, aðstoðarmenn pólitíkusa – og fyrrverandi starfsmenn Landsbankans. Hér er listinn eins og hann lítur út fyrir prófkjörið hjá Sjálfstæðisflokknum.

Popppunktar, endurunnin grein

Popppunktar, endurunnin grein

Eyjan
20.02.2009

Það spannst dálítil umræða um tónlist og tónlistarsmekk hér á vefnum fyrr í dag. Þess vegna endurbirti ég þessa grein sem ég skrifaði fyrir nokkrum árum. — — — Einhvern tíma ætla ég að fá að vera með þátt í útvarpi og spila bara lög. Það er bráðum nóg komið af þessu rövli. Manni hrýs Lesa meira

Okurbúllur

Okurbúllur

Eyjan
20.02.2009

Framkvæmdastjóri 10-11 segir að ASÍ sé ekki treystandi fyrir verðkönnunum. Maður getur sagt á móti að 10-11 sé ekki treystandi til að stunda verslunarrekstur. Því þetta eru viðurstyggilegustu og óskammfeilnustu okurbúllur í víðri veröld.

Atvinnuleysið í 8,5 prósent

Atvinnuleysið í 8,5 prósent

Eyjan
20.02.2009

Atvinnuleysi eykst miklu hraðar en spáð var. Þessar tölur eru hrikalegar. 8,5 prósenta atvinnuleysi – í landi þar sem til skamms tíma varð að flytja inn erlent vinnuafl í stórum stíl. Meðan þetta er svona er það lúxus sem við getum ekki leyft okkur að eyða tveimur mánuðum í hefðbundið flokkspólitískt kosningakarp.

Síbylja

Síbylja

Eyjan
20.02.2009

Sú ágæta tónlistarkona, Þorgerður Ingólfsdóttir, talaði um síbylju við afhendingu íslensku tónlistarverðlaunanna á miðvikudagskvöld. Um þetta skrifar Arnar Eggert Thoroddsen pistil í Morgunblaðið í dag og er mikið niðri fyrir. En misjafn er smekkur mannanna. Tónlistargagnrýnandanum Jónasi Sen finnst Mozart leiðinlegur – í huga hans er Mozart síbylja. Og sjálfur get ég – unnandi klassískrar Lesa meira

Ný yfirstétt?

Ný yfirstétt?

Eyjan
19.02.2009

Í DV í dag er upplýst að nefndarmenn í skilanefndum bankanna séu með 25 þúsund á tímann – og allt að 5 milljónir á mánuði í laun. Það er spurning hvort hér sé í fæðingu ný yfirstétt? Lögfræðingar sem eru fengnir til að ganga frá eftir partíið.

Après nous, le deluge

Après nous, le deluge

Eyjan
19.02.2009

Gunnar Tómasson sendi mér þetta bréf: — — — Þann 14. nóvember 2006 opnaði ég umræðuþráð á vefsíðu Gang8 (hópur hagfræðinga beggja vegna Atlantshafs, sjá www.creditary-economics.org) með heitinu „Après nous, le deluge – Anno 1972-2006.”  Þar vík ég m.a. að samþættingu alþjóðapeningakerfisins og hnattræna hagkerfisins með þessum orðum: „It is self-evident that, concurrently, monetary feet Lesa meira

Meirhluti vill endurúthlutun?

Meirhluti vill endurúthlutun?

Eyjan
18.02.2009

Meirihluti þjóðarinnar hefur alltaf verið á móti kvótakerfinu. Og er það enn samkvæmt skoðanakönnun MMR. Hún sýnir að mikill meirihluti vill endurúthlutun kvótans. Það eru bara stjórnmálamennirnir sem hafa verið ófærir um að aðhafast í þessu máli í samræmi við þjóðarvilja. Og verða það kannski áfram?

Mest lesið

Ekki missa af