Ekki óskað eftir gögnum frá Lúx
EyjanNú virðist enn eiga að reyna að selja Líbýumönnum Kaupþing í Lúxemborg. Og enn vakna spurningar um meðreiðarsveina Líbýumanna. Vitað er um náin tengsl Sigurðar Einarsonar við þá. Margir eru þeirrar skoðunar að Kaupþing í Lúxemborg sé einn lykillinn að rannsókn íslenska fjármálahrunsins. Ef það er rétt ættum við ekki að sætta okkur við að Lesa meira
Ráðherrar hjá viðskiptaráði
EyjanEkki skilur maður alveg í ráðherrum, forsætisráðherra og viðskiptaráðherra – og formanni Sjálfstæðisflokksins – að ætla að mæta á stórfund hjá viðskiptaráði þar sem á að tala um „endurreisn hagkerfisins“. Viðskiptaráðið er batterí sem þyrfti að fara í grjótharða sjálfsgagnrýni á næstu árum. Eiginlega væri ráð að það byrjaði á því að biðja þjóðina afsökunar Lesa meira
Er þessi skýrsla til?
EyjanÞessi tilvitnun í hina umtöluðu grein í Vanity Fair er athyglisverð. Þarna er fullyrt að sjálfstæðir rannsóknarmenn hafi gert úttekt á íslenska fjármálakerfinu og komist að því að það væri í tómu rugli. Væri gaman að sjá þessa skýrslu. „I spoke with a hedge fund in New York that, in late 2006, spotted what it Lesa meira
Seðlabankinn, einelti pólitíkusa í marga áratugi
EyjanEf við lifðum ennþá í íslenska spillingar-, klíku- og flokksgæðingaskipulaginu, þá væru Geir H. Haarde, Valgerður Sverrisdóttir eða Össur Skarphéðinsson sennilega á leið í Seðlabankann. Hugsanlega erum við nú á leiðinni út úr þessum tíma. Ef fórnarkostnaðurinn er sá að hafa Norðmann sem seðlabankastjóra um stundarsakir – ja, þá er það hið besta mál. Jón Lesa meira
Tímafrekt að skrifa
Eyjan– Það er mjög tímafrekt að vera rithöfundur, dæsti Kári eftir að hann hafði skrifað sögu fyrir skólann. Sagan átti að fjalla um fjallgöngu. Hún er svona: „Einu sinni voru fjallgöngumenn Fjalli og Steinn. Þeir voru að klifra upp á Mont Everest. Þeir voru bestu fjallgöngumenn í heimi. Þeir notuðu skó með oddum. Þeir fóru Lesa meira
Ekki úr háum söðli að detta í Seðlabankanum
EyjanEr hugsanlega dálítið ankanalegt þegar sá frómi maður Jón Sigurðsson skrifar um að trúverðugleiki Seðlabankans sé í tætlum? Jafnvel hræsnisfullt. Nú veit ég ekki betur en að Jón hafi setið í bankastjórastóli þar, í sæti sem var talið í eigu Framsóknarflokksins. Í því sátu á undan Jóni – Steingrímur Hermannsson og Finnur Ingólfsson! Steingrímur sagðist Lesa meira
Konur, bókamarkaður, Passíusálmur og hús við Þingholtsstræti
EyjanÍ Kiljunni í kvöld verður fjallað um skáldsöguna Konur eftir Steinar Braga. Bókin kom upp í litlu upplagi fyrir jól, seldist upp, og er nú komin út í kilju. Miklar umræður hafa skapast um bókina meðal lesenda. Tvær ungar háskólakonur, Bryndís Björgvinsdóttir og Yrsa Þöll Gylfadóttir, segja frá upplifun sinni af bókinni. Við fjöllum um Lesa meira
Gísli: Sú saga hefur enn ekki verið sögð
EyjanGísli Marteinn Baldursson skrifar athyglisverðan pistil um REI málið á heimasíðu sína. Hann endar með svofelldum orðum: „Við þetta má bæta að það er mjög athyglisvert að fylgjast með því hvernig höfuðpaurar REI málsins sem véluðu um það frá upphafi, hafa æ síðan staðið saman í opinberri umræðu þegar óþægilegar fréttir hafa borist um það Lesa meira
Gildi sparisjóðanna
EyjanSparisjóðirnir fá viðurkenningu vegna góðs árangurs í svokallaðri ánægjuvog. Í fréttinni segir. „Vörumerki sparisjóðanna, Sparisjóðurinn, Byr og SPRON raða sér í þrjú efstu sætin í hópi fjármálafyrirtækja og er þetta 10. árið í röð sem sparisjóðirnir hreppa þá viðurkenningu.“ Það er svosem ágætt. Ég er með mín bankaviðskipti í einum sparisjóðanna og hef ekki yfir Lesa meira
DV gegn Guðlaugi
EyjanDV er í býsna svæsinni herferð gegn Guðlaugi Þór Þórðarssyni – frambjóðanda í fyrsta sætið hjá sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Blaðið birtir dag eftir dag fréttir af fasteignasala og gleðipinna í bænum sem á að hafa svikið undan skatti, keyrt fullur og reynt að múta lögreglu. Í hvert sinn sem er skrifað um manninn er nefnt Lesa meira
