Buiter um hertar reglur á fjármálamarkaði
EyjanÍslandsvinurinn Willem Buiter – eiginmaður Anne Sibert sem situr í nýrri peningastefnunefnd Seðlabankans, þau voru saman gestir í Silfrinu fyrir nokkru – skrifar merkilega grein á vefinn Vox og fjallar um nauðsyn þess að setja strangar reglur um fjármálamarkaði, segir að nú sé tækifæri til. Hann leggur áherslu á gagnsæi, segir brýnt að koma upp Lesa meira
Leppar og leynifélög 5. hluti
EyjanHér er meðal annars fjallað um sparisjóðinn Byr, A-holding í Lúxemborg, dularfullt risalán í Landsbankanum, skúffufyrirtæki og svo hina frægu eyju Tortola. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=Qxq_Xav-jxE] Og meðan ég man – hvenær fáum við upplýsingar um það sem var raunverulega að gerast í Landsbanka og Glitni? Til dæmis um lánveitingar úr þessum bönkum? Er þetta svo viðkvæmt að Lesa meira
Neðanmálsgrein í fjölmiðlasögunni
EyjanÞað er ekki margt sem ég skammast mín fyrir á ferli mínum í fjölmiðlum. Hann er ekki allur stórglæsilegur, en ég hef ekki gert margt sem mér finnst ég þurfa að blygðast mín fyrir. Einn er þó sá staður sem ég hefði helst ekki viljað vera á. Þegar ég heyri minnst á hann finn ég Lesa meira
Geggjuð útlán
EyjanSigrún Davíðsdóttir flutti enn einn snilldarpistilinn í Speglinum í gær, nú um útlán íslensku bankanna. Við skulum grípa niður í pistilinn á tveimur stöðum: „Spegillinn hefur áður bent á að ein stærsta blekkingin í útrás íslenskra fyrirtækja er að útrásin hafi verið fjármögnuð af erlendum bönkum. Útlendir bankar komu vísast við sögu, kannski ekki síst Lesa meira
Deilt um lífeyrissjóði
EyjanViðtal mitt við Ragnar Þór Ingólfsson verslunarmann í síðasta Silfri vakti talsverða athygli. Ragnar hefur verið að kynna sér málefni þess ríkis í ríkinu sem eru lífeyrissjóðirnir. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna, svaraði Ragnari skömmu eftir þáttinn. Hér eru svör hans – og svör Ragnars.
Verðtrygging vs. myntkarfa
EyjanHjálmar Gíslason, sem var í viðtalið í Silfri Egils um þarsíðustu helgi, birtir þessa athyglisverðu skýringamynd á blogginu sínu. Lýsir þróun 10 milljón króna láns frá 1. júlí 2007. Sjá nánar hér.
Verður hægt að halda áfram í Helguvík?
EyjanÉg hef sagt að það sé býsna fánýtt að þrasa um álver og ekki álver í því ástandi sem ríkir á heimsmörkuðum. Ofan á fjármálakreppuna hefur bæst framleiðslukreppa – hún kemur aðeins síðar – en vegna hennar hefur verðið á áli hrunið og álfyrirtæki eru í verulegum vandræðum. Ágúst Þórhallsson skrifar lærða grein um þetta Lesa meira
Er hægt að bjarga sparisjóðunum?
EyjanSteingrímur J. segir að allt verði gert til að bjarga sparisjóðunum. En sparisjóðirnir ramba margir á barmi gjaldþrots – og er varla viðbjargandi. Skuldir Sparisjóðabankans eru óskaplegar, og það er spurning með Byr – þolir hann gjaldþrot Baugs? (Byr er reyndar ekki sparisjóður lengur nema að nafninu til.) Hvernig á þá að bjarga þessum félögum? Lesa meira
Fyrrum montnasti maður á Íslandi
EyjanÉg hef ekki tölu á því hvað ég er búinn að sjá mörg viðtöl við William Fall, bankastjóra Straums, um hvað bankinn hans væri vel staddur – og alls ekki eins og hinir bankarnir. Mér fannst eins og þetta væri hugsanlega montnasti maður á Íslandi. Fjölmiðlarnir voru sumir mjög ginnkeyptir fyrir þessu. Svo er þetta Lesa meira
Fiskbúðir
EyjanFiskisaga er sorglegt fyrirbæri. Hringur sem ætlaði að ná undirtökum í fisksölu í bænum. En seldi verri fisk en gömlu fisksalarnir og á hærra verði. Tók líka yfir hina fyrrum frábæru kjötverslun Gallerí Kjöt og eyðilagði hana. Það sárvantar alvöru slátrarabúðir í bænum. Litlu fisksalarnir eru sem betur fer ennþá til. Ég fer í fiskbúðina Lesa meira
