fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026

Óflokkað

Jón Steinsson um auðhringi, anno 2005 eða fyrr

Jón Steinsson um auðhringi, anno 2005 eða fyrr

Eyjan
12.03.2009

 Einn af ágætum pennavinum sendi mér þessa úrklippu, það vantar reyndar aðeins neðan af henni, með svofelldum orðum: „Ég hafði aldrei heyrt um Jón Steinsson, hagfræðing.  Þegar þessi grein birtist fyrir mörgum árum.  Mér hreinlega brá:  vitræn umræða um hætturnar fylgjandi hringamyndun. Festi þetta með teiknibólu á töflu í eldhúsinu, þar sem ég rakst á Lesa meira

Harðar tekið á hvítflibbabrotum

Harðar tekið á hvítflibbabrotum

Eyjan
12.03.2009

Í þessari grein í New York Times kemur fram að saksóknarar í Bandaríkjunum búa sig undir stórfellda átak gegn fjármálaglæpum. Eva Joly talaði um að á fundi heimsleiðtoga, G 20 fundinum svokallaða, í London í apríl yrði rætt um aðgerðir gegn skattaskjólum. Hún hefur sjálf verið í sambandi við bandaríska öldungadeildarþingmenn sem hafa unnið í Lesa meira

Gegn fákeppni og einokun

Gegn fákeppni og einokun

Eyjan
11.03.2009

Styrmir Gunnarsson skrifaði grein í Moggann í gær. Hann vill að Sjálfstæðisflokkurinn færi sig inn á miðjuna, kasti öllum frjálshyggjutilhneigingum og gerist fjarska velferðarsinnaður. Hirði miðjufylgi af Samfylkingunni. Hann telur semsagt þörf á  hugmyndalegri endurnýjun í flokknum; það hefur ekki farið mikið fyrir henni síðan fyrrverandi formaður flokksins tætti í sig skýrslu endurreisnarnefndar á landsfundi Lesa meira

Guðlaugssundið

Guðlaugssundið

Eyjan
11.03.2009

Ég man það enn hvað maður var agndofa eftir að Guðlaugur Friðþórsson synti sitt mikla sund eina ískalda nótt í marsmánuði fyrir tuttugu og fimm árum. Margir kílómetrar í úfnum sjó, eftir að hafa horft á eftir félögum sínum, ungum mönnum á vélbátnum Hellisey, í greipar ægis, talandi við mávana, skimandi eftir ljósunum í landi, Lesa meira

Ragnar var líka kosinn

Ragnar var líka kosinn

Eyjan
11.03.2009

Það var ekki bara Kristinn Örn Jóhannesson sem fékk kosningu sem formaður VR. Í stjórn félagsins voru kosnir þrír menn, þar á meðal Ragnar Þór Ingólfsson, sem hefur fjallað mikið um lífeyrissjóðsmál, þar á meðal í Silfri Egils. Ragnar hlaut yfirburðakosningu eins og sjá má hér.

Fall Straums, kaupréttarsamningar og lán frá Seðlabanka

Fall Straums, kaupréttarsamningar og lán frá Seðlabanka

Eyjan
11.03.2009

Það er verið að fjalla um lánveitingar Seðlabankans til Straums. Eftir áramótin birtust fréttir um að yfirmenn hjá Straumi hefðu veitt sjálfum sér kaupréttarsamninga. Mörgum þótti það skrítin tímasetning. Stuttu síðar það fór gengið á bankanum í mikla rússíbanareið eins og sjá má hér. Ég fékk senda þessa nótu frá manni sem er vel að Lesa meira

Sýmbíótískt samband

Sýmbíótískt samband

Eyjan
11.03.2009

Ég sé að bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir skrifa varnarræðu um sjálfa sig í Moggann í dag. Þetta er grein af því taginu þar sem má segja að sé skautað létt yfir. Tengsl Kaupþings og Exista eru sérstakt rannsóknarefni. Exista átti Kaupþing og Kaupþing lánaði Exista. Það er sagt að höfundurinn að plottinu hafi verið Lesa meira

Einar Kára, höfundur Njálu, Tvískinna og Austri

Einar Kára, höfundur Njálu, Tvískinna og Austri

Eyjan
11.03.2009

  Einar Kárason er aðalgesturinn í Kiljunni í kvöld. Einar fékk nýskeð Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsögu sína Ofsa. Hann er einnig að skemmta fólki með sagnalist sinni í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Ég leyfi mér að halda því fram í þættinum að hann sé á hátindi ferils síns. Einar ræðir um skáldskap sinn, Sturlungu, ríkidæmi og Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af