Eru dagar skattaskjólanna taldir?
EyjanSkjótt skipast veður í lofti. Samkvæmt þessari grein í Der Spiegel eru skattaskjól í Evrópu brátt úr sögunni. Vonandi er það satt. Nú er tími til að fara að heimta upplýsingar.
Grein eftir Andrés
EyjanÉg bendi á þessa grein á nýju bloggi Andrésar Magnússonar læknis sem hefur verið gestur í Silfri Egils. Hann hefur haft einstaklega glögga og krítíska sýn á útrásarbrjálæðið og bankahrunið: „En þeir sem voru að stunda Carry Trade eru ekki á flæðiskeri staddir þótt að bankaviðskipti þeirra fari á hliðina með ómældum hörmungum fyrir þjóðfélagið. Lesa meira
Furðulegt verð á óveiddum fiski, eða bara kvótabrask
EyjanÞetta er áhugaverður pistill hjá Kristni Péturssyni, um það sem hann kallar Enron-verðmyndun aflaheimilda. Hvernig verð á óveiddum fiski var blásið upp úr öllu valdi. Ekki veit ég hvort þetta verður rannsakað hjá saksóknara, en það er ljóst að þetta er mál sem rannsóknarnefnd þingsins þarf að skoða. Kristinn á að senda gögn sín þangað.
Borgunarmaður
EyjanÍ frétt í Mogganum í dag segir að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi fallið um nærri fjögur hundruð sæti á listanum yfir ríkustu menn heims. Og að auðævi hans séu „aðeins“ metin á 112 milljarða króna. Það þýðir að hann er ennþá borgunarmaður fyrir Icesave. Frekar en til dæmis fjölskyldurnar í landinu sem þetta lendir annars Lesa meira
Tími ólígarkanna
EyjanFlosi Kristjánsson bendir í bloggfærslu á Viðskiptaþing árið 2005. Þá var aðalræðumaðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson. Hann talaði gegn dreifðri eignaraðild og eftirlitsstofnunum, hvort tveggja taldi hann vera argasta misskilning eins og segir hér: „Þá fjallaði Björgólfur um hugmyndir um kosti dreifðrar eignaraðildar almennt í stórum fyrirtækjum. Varpaði hann fram þeirri skoðun sinni að kostir hennar Lesa meira
Smávegis viðbót um Viðskiptaráð
Eyjan”Einnig væri líklegt að fjármagnseigendur flyttu fjármagn sitt annað.” Þetta er óbreytt setning upp úr ávarpi formanns Viðskiptaráðs og forstjóra Exista. Forystumanns í íslensku útrásinni. Hann telur semsagt að nú muni efnafólk fara að færa fé sitt burt – kannski í skattaskjól? En Jóhanna hafði þetta að segja: „Ég hef haldið því fram og ég Lesa meira
Dæmalaus ræðuhöld
EyjanHefði ekki verið nær að Erlendur Hjaltason bæði afsökunar á hlut sínum í hruni íslenska efnahagskerfisins, bæði sem formaður Viðskiptaráðs og sem forstjóri Exista? Viðskiptaráð barðist fyrir því að allt yrði einkavætt, allar hömlur afnumdar og allt regluverk. Þetta verður sjálfsagt fyrsta Viðskiptaþing í langan tíma þar sem þess er ekki krafist að Íbúðalánasjóður verði Lesa meira
Eignasýslufélagið
EyjanÞetta er mjög mikilvægt mál – að taka gjaldþrota fyrirtæki sem við getum ekki án verið út úr bönkunum. Og það er ekki síður mikilvægt að kveðið er á um að eignasýslufélaginu skuli slitið innan fimm ára. Þegar þetta er orðið að veruleika þarf að hefjast handa við endurskipulagningu og endurfjármögnun bankakerfisins. Eins og staðan Lesa meira
