Það vantar heiðarlegar upplýsingar
EyjanTryggvi Gunnarsson sendi mér þetta bréf. — — — Áskorun til fjölmiðlafólks Þegar Alþingiskosningar nálgast, skríða lýðskrumarar fram úr skúmaskotunum. Hinir Framsæknu eru enn á ný komnir á kreik með stóran og verðbólginn kosningavíxil á ótrúlega hagstæðum kjörum fyrir kjósendur. En Sjálfstæða fólkið bíður spennt átekta bak við gisinn frjálshyggjurunna, reiðubúið að stökkva uppá þennan Lesa meira
Saga úr kreppunni
EyjanKona sendi mér þetta bréf. — — — Sæl/Sæll Langar að segja ykkur aðeins sögu okkar hjóna. Við upphaf kreppunnar var um 1 ár síðan við keyptum íbúðina okkar, við vorum einnig með aðrar skuldir en þetta hafðist alveg. Þegar bankarnir hrynja, þá hrapar maðurinn minn í launum um næstum 2/3. Ég held sömu launum Lesa meira
Tveir gulldrengir
EyjanMeð falli Milestone, en eigur þess eru nú komnar endanlega í hendur skilanefndar Glitnis, hefur íslenska ríkið eignast fyrirtæki sem voru rekin af tveimur gulldrengjum íslenska efnahagsundursins. Báðum tókst að reka fyrirtæki sín þannig að nú hefur hið opinbera gert þau upptæk. Sjóvá-Almennar – en þar hefur Þór Sigfússon verið forstjóri. Um bótasjóð Sjóvár hefur Lesa meira
Skjaldborg Þráins
EyjanÞráinn Bertelsson kemur með þessa útfærslu á hugmyndum Framsóknarmanna á skuldaniðurfellingu: „Sú sjálfsagða lausn sem ég hef á því “að slá skjaldborg um heimilin” einsog Samfylkingin talaði um en þorir ekki að gera og gengur út á að taka „Þráins-tilbrigðið“ við gambít Framsóknarflokksins og Tryggva Þórs Herbertssonar um 20% flata niðurfellingu skulda. Mín varíasjón Lesa meira
Kári og hemúllinn
EyjanÍ einni bókinni um múmínálfana kemur við sögu hemúllinn sem safnar frímerkjum og er í vandræðum vegna þess að hann er búinn að safna öllum frímerkjum í heiminum. Hann er í öngum sínum vegna þessa, en tekur gleði sína þegar honum er bent á að hann geti farið að safna einhverju öðru. Til dæmis blómum Lesa meira
Við hefðum þurft miklu meiri leka
EyjanLekar eru eitt af því sem fjórða valdið, fjölmiðlar, byggja helst á. Stofnanir, stjórnkerfi og fyrirtæki vilja helst halda sem mestu leyndu. Það er í eðli þeirra. Watergate er frægasta fjölmiðlamálið sem byggist á lekum. Það er enn talað um Deep Throat sem afhenti blaðamönnunum Woodward og Bernstein gögn um spillingu í stjórnkerfinu. Annað dæmi Lesa meira
Sigurður staðfestir fréttir af Kaupþingi
EyjanSigurður Einarson er ótrúlegur maður. Nú er hann að kvarta undan því að trúnaðargögnum hafi verið lekið út úr Kaupþingi. Hingað til hefur hann mótmælt öllu og sagt það ósatt. En fyrst hann segir að þetta sé byggt á trúnaðargögnum sem hann telur að leynd eigi að ríkja um – ja, þá hlýtur það að Lesa meira
Þetta er í boði hjá íhaldinu og krötum
EyjanUm helgina voru haldin prófkjör hjá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Miðað við niðurstöðurnar ættu eftirtaldir frambjóðendur að hafa öruggar – eða mjög góðar – líkur á þingsæti eftir kosningarnar: Samfylkingin Gamlir þingmenn: Jóhanna Sigurðardóttir Össur Skarphéðinsson Helgi Hjörvar Steinunn Valdís Óskarsdóttir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Árni Páll Árnason Katrín Júlíusdóttir Guðbjartur Hannesson Kristján Möller Björgvin G. Sigurðsson Lesa meira
Fortölur og Tortúla
EyjanAri Matthíasson sendi mér þessa grein. — — — Ég leyfi mér að efast um að auðmenn sem komið hafa peningum sínum til Tortúlu muni með fortölum færa þá aftur inn í íslenskt hagkerfi. Sérstaklega vegna þess að þá gætu þeir átt á hættu að þurfa að útskýra tilvist auðsins og jafnvel gera hlut sem Lesa meira
Félagar ræða málin
EyjanHér er merkileg frétt frá því 4. desember 2007. Sýnir stjórnendur FL-Group funda – í húsnæði lögfræðistofunnar Logos. Ljósmynd er tekin inn um gluggann. Þar sjást meðal annars Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes Smárason – og lögfræðingurinn Gunnar Sturluson, einn eigenda Logos.
