fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026

Óflokkað

Nafnlausa bréfið

Nafnlausa bréfið

Eyjan
15.04.2009

Forvitnileg lesning í ljósi blaðaskrifa – og dómsmála sem kunna að spinnast út af bankahruninu. Nafnlausa bréfið fræga úr Baugsmálinu. http://www.baugsmalid.is/skjol/nafnlaust.pdf

Stjórnarskrármálið í hnotskurn

Stjórnarskrármálið í hnotskurn

Eyjan
15.04.2009

Þetta eru í hnotskurn – textinn er úr Morgunblaðinu – atriðin úr stjórnarskrárfrumvarpinu sem Alþingi nær ekki að samþykkja. — — — Náttúruauðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti séu þjóðareign Þegar Alþingi hafi samþykkt breytingar á stjórnarskrá skuli þær bornar undir þjóðaratkvæði. 15 prósent kjósenda geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um tiltekin mál sem varða almannaheill. Lesa meira

Skuggaprýði

Skuggaprýði

Eyjan
15.04.2009

Húsið við Vatnsstíg þar sem hústökufólkið settist að var eitt sinn kallað Skuggaprýði. Það átti að víkja fyrir glæsibyggingum, segir verktakinn sem hafði keypt upp alla húsalengjuna og líka hús á horni Laugavegar og Vatnsstígs. Hann segir að borgin hafi komið í veg fyrir þessi áform. En hver í ósköpunum er að fara að kaupa Lesa meira

Furðuskrif lögmanns

Furðuskrif lögmanns

Eyjan
15.04.2009

Grein Brynjars Níelssonar lögmanns kemur ekki mikið á óvart. En einhverjir varðmenn gamla kerfisins munu sjálfsagt stökkva fagnandi á hana. Í annarri grein, sem hann skrifaði snemma síðasta vetur, setti hann sig upp á móti stofnun embættis sérstaks saksóknara og taldi af og frá að rannsaka mál líkt og grunur léki á um refsiverð brot. Lesa meira

Úr Jónsbók

Úr Jónsbók

Eyjan
15.04.2009

Í ljósi tíðinda undanfarinnar viku hafa eftirfarandi kaflar úr Jónsbók, ævisögu Jóns Ólafssonar sem Einar Kárason skráði, óneitanlega fengið aukið vægi: „….Auðvitað má segja að Jón og félagar hafi verið að safna glóðum elds að höfði sér með því að vera með derring við Flokkinn.  Það má til dæmis segja frá því að fyrst um Lesa meira

Gamli kirkjugarðurinn og Nanna í Kiljunni

Gamli kirkjugarðurinn og Nanna í Kiljunni

Eyjan
15.04.2009

Aðalefnið í Kiljunni í kvöld er göngutúr um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu með Guðjóni Friðrikssyni, þeim margfróða sagnfræðingi. Þessi ferð okkar um garðinn verður sýnd í tveimur hlutum í þættinum, í fyrri hlutanum er einkum fjallað um þjóðskáldin sem hvíla í þar. Við förum í heimsókn til Nönnu Rögnvaldsdóttir sem er fremst matreiðslubókahöfunda á Íslandi Lesa meira

Dótturfélögin

Dótturfélögin

Eyjan
15.04.2009

Stjórnmálaflokkarnir virðast gjörsamlega hafa verið búnir að tapa áttum árið 2006. Þá voru hin raunverulegu völd í landinu raunar komin í hendurnar á bankastjórnendum og útrásarvíkingum svokölluðum. Flokkarnir voru farnir að leggja svo mikla peninga í kosningar að þeir töldu sig tilneydda til að væla sífellt í peningamönnum um styrki. Um leið lögðust þeir marflatir Lesa meira

Ljósum logum um netið

Ljósum logum um netið

Eyjan
15.04.2009

Þessi tölvupóstur fer ljósum logum um netið. — — — Kæru fulltrúar þjóðarinnar, Ég krefst þess að þingheimur og ríkisstjórn upplýsi nú þegar um: – Skilyrði IMF lánsins (hvort nytjaréttur á auðlindum þjóðarinnar, leiga eða einhvers konar samningar varðandi þær séu endanlegt veð fyrir láninu – og ef svo er ekki, að við fáum rökstuðning Lesa meira

Kakkalakkar

Kakkalakkar

Eyjan
14.04.2009

  Húseigandinn að Vatnstíg 4 þar sem hústökufólk hefur komið sér fyrir segir að kakkalakkar hafi tekið sér bólfestu í húsinu. Ég sem hélt að kakkalakkar fyrirfyndust varla í Reykjavík. Eða afar sjaldan. Annars var systir mín eitt sinn með auglýsingastofu þarna á neðstu hæðinni – ég man ekki betur en þetta hafi verið stórt Lesa meira

Krónan til sífelldra vandræða

Krónan til sífelldra vandræða

Eyjan
14.04.2009

Gjaldeyrishöftin voru hert til muna eftir næturfundi á Alþingi fyrir páska. Nú er nánast óheimilt að versla með íslenskar krónur nema í viðskiptum innanlands. Samt heldur krónan áfram að veikjast og veikjast. Jöklabréfin eru ennþá eins og eitur inni í kerfinu. Upphæð þeirra er talin nema um 400 til 500 milljörðum króna. Vaxtagreiðslurnar eru ótaldir Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af