fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026

Óflokkað

Litla hryllingsbúðin í Lúx

Litla hryllingsbúðin í Lúx

Eyjan
22.04.2009

Enn einn snilldarpistillinn frá Sigrúnu Davíðsdóttur í Speglinum. — — — Lúxemborg er pínulítið land í miðri Vestur-Evrópu, íbúarnir eru tæplega 500 þúsund og þjóðartekjur á mann eru með þeim hæstu í heimi. Fram eftir síðustu öld var þarna blómlegur iðnaður, einkum stáliðnaður en á 7. áratugnum fór að halla undan fæti í þeim efnum. Lesa meira

Launaskerðingin

Launaskerðingin

Eyjan
22.04.2009

Andri Geir Arinbjarnarson er einn besti bloggarinn um þessar mundir. Vel menntaður maður, skarpur, óhræddur. Hér skrifar hann um lækkun launa á Íslandi. Hún er allsvakaleg – og ljóst að við hættum brátt að geta borið okkur saman við nágrannaþjóðir í því efni.

Guðjón, sögupersónur Halldórs, Breiðfjörð og Bangsímon í Kiljunni

Guðjón, sögupersónur Halldórs, Breiðfjörð og Bangsímon í Kiljunni

Eyjan
22.04.2009

  Í Kiljunni í kvöld verður seinni hluti gönguferðarinnar um gamla kirkjugarðinn með Guðjóni Friðrikssyni. Í þetta sinn skoðum við leiði persóna sem tengjast verkum Halldórs Laxness, þar ber náttúrlega hæst Sigurð Breiðfjörð – jú, og Erlend í Unuhúsi –  en einnig skoðum við legstaði ýmissa höfunda sem störfuðu við upphaf tuttugustu aldar og alveg Lesa meira

Veruleikinn

Veruleikinn

Eyjan
22.04.2009

Ein leið út úr kreppu er reyna að auka umsvif í hagkerfinu með framkvæmdum. Þetta var til dæmis gert í Bandaríkjunum í kreppunni miklu, frægasta dæmið eru virkjanirnar miklu sem kenndar eru við Tennessee Valley Authority. Við Íslendingar höfum ekki þennan möguleika, einfaldlega vegna þess að við höfum ekki aðgang að fjármagni til að ráðast Lesa meira

Meiri Dylan

Meiri Dylan

Eyjan
22.04.2009

Svona fyrst ég var að nefna Dylan. Lag frá tíma sem almennt þótti heldur slakur í ferli hans, af Knocked Out Loaded frá 1986. Textann samdi hann í félagi við leikarann og leikskáldið Sam Shepard. Þetta er eitt af hinum löngu lögum Dylans sem krítíkerar hafa kallað epísk – og tær snilld. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=RjYb__HQHQw]

Nýtt frá Dylan

Nýtt frá Dylan

Eyjan
21.04.2009

  Nýtt lag eftir Bob Dylan, Beyond Here Lies Nothin af nýrri plötu sem heitir Together Through Life – smellið á myndbandið neðarlega í vinstra horninu.

Prófkjörspeningar og vildarkjör

Prófkjörspeningar og vildarkjör

Eyjan
21.04.2009

Ég hef nokkrum sinnum skrifað um peninga sem runnu til stjórnmálamanna sem lögðu út í dýra prófkjörsbaráttu. Til dæmis hér. Ég hef haft góðar heimildir fyrir því að ýmsir prófkjörskandídatar hafi þegið stórar fjárhæðir frá bönkum og stórfyrirtækjum. Svo stórar að þessu fólki væri nánast ómögulegt að gagnrýna fjármálamennina sem gáfu þeim peninga. Hér er Lesa meira

Ísrael er rasistaríki

Ísrael er rasistaríki

Eyjan
21.04.2009

Þetta er utanríkisráðherra Ísraels og varaforsætisráðherra. Avigdor Liberman. Svo strunsa diplómatar út af fundi þar sem forseti Írans segir Ísrael sé rasískt ríki. Hvílík hræsni. Ahmadinejad – sem vissulega er hálf galinn – hefði varla getað mælt sannari orð. Íransforseti er reyndar ekki engu verri en Liberman eða Netanyahu. Allt eru þetta ofstækismenn sem eru Lesa meira

Sprakk stjórnin?

Sprakk stjórnin?

Eyjan
21.04.2009

Er þetta rétt greining hjá Guðna Ágústssyni, að ríkisstjórnin hafi sprungið á stjórnmálafundinum á Selfossi í gærkvöldi. Þegar þeir tókust á um ESB Björgvin G. Sigurðsson og Atli Gíslason. Annars finnst manni að það hljóti að vera að Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. hafi rætt hvernig þau ætli að ná málamiðlun í Evrópumálum. Ef svo Lesa meira

Sirtaki

Sirtaki

Eyjan
21.04.2009

Ég sé að smyglskútan sem verið er að færa til hafnar heitir Sirtaki. Sirtaki (συρτάκι) er annars nafnið á grískum dansi. Þeim sama og Zorbas dansar í frægri bíómynd. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=IeBxzpwGh_A&feature=related]

Mest lesið

Ekki missa af