Um ræður seðlabankastjóra
EyjanGunnar Tómasson hagfræðingur sendi mér þessa grein. — — — Mbl. grein 1. apríl 2009 „Erlend lántaka fyrirtækja, heimila og bankastofnana hefur haft í för með sér að skuldir þjóðarbúsins í heild hafa aukist mjög og af þeim þarf að greiða.” Umsögn. Þetta er allt og sumt sem seðlabankastjóri hefur að segja um málið. Skuldir Lesa meira
Má ekki leyna
EyjanÞað er rétt hjá Sigmundi Davíð. Óforsvaranlegt að birta ekki þessa skýrslu. Við þurfum að sjá hana ekki seinna en í fyrramálið.
Á leiðinni úr landi
EyjanHér er athyglisverð grein, uppgjör við flokkakerfið, eftir Hrannar Baldursson sem segist hafa misst vinnuna og er á leið úr landi.
Engin framtíðarsýn, engin pólitík
EyjanJón Baldvin Hannibalsson skrifar þessa grein. — — — Um veruleikafirrta pólitík: ENGIN FRAMTÍÐARSÝN – ENGIN PÓLITÍK Tókuð þið eftir smáfrétt í hádeginu í dag? Ölgerðin hefur að undanförnu verið að reyna að ná samningum um markaðssetningu á íslenskum bjór á breska markaðnum. Sumir mundu halda að það væri, eins og sagt var í enskukennslubókunum Lesa meira
Plís, ekki meiri upphrópanir um álver
EyjanÞegar spurt er um álver í Helguvík er það ekki afstaða íslenskra stjórnvalda sem skiptir máli, heldur þetta: Hrun Century Aluminium. Og staða Landsvirkjunar sem hefur litla sem enga fjármögnunarmöguleika. Og verð á áli sem hefur farið stöðugt lækkandi. Hér er ágæt grein um málið af vefnum AMX. Þetta þarf að ræða á skynsamlegum nótum, Lesa meira
Um verðbólgu og vanda heimilanna
EyjanHákon Hrafn Sigurðsson er höfundur þessarar úttektar á verðbólgunni sem hér hefur grasserað um áratugi og kjörum lántakenda.
Bresku fjárlögin: Hátekjuskattur
EyjanAlisdair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, kynnti í gær fjárlögin fyrir næsta ár. Í þeim felst meðal annars að þeir sem eru með árstekjur upp á 150 þúsund pund greiða 50 prósenta hátekjuskatt. 150 þúsund pund er reyndar ansi há fjárhæð, um það bil 25 milljónir íslenskra króna. Þeir sem eru með tekjur yfir 100 þúsund pundum Lesa meira
Viðhorf til olíuvinnslu
EyjanKolbrún Halldórsdóttir er á móti olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Ég geri ráð fyrir að Vinstri græn verði upptekin við að eyða skaðanum af þessari yfirlýsingu næstu dagana. En það má kannski segja Kolbrúnu til málsbóta að það er eiginlega í verkahring umhverfisráðherra að vera krítískur á svona framkvæmdir. Ég velti hins vegar fyrir mér viðhorfi þessa Lesa meira
Fyrirgreiðsla
EyjanAlltaf skulu sömu andlitin birtast þegar fjallað er um fyrirgreiðslu til stjórnmálamanna frá bönkum eða stórfyrirtækjum. En það vantar upplýsingar úr Landsbankanum. Heimildir mínar herma að þar hafi verið ríflega fyrirgreiðslu að fá fyrir stjórnmálamenn í sóknarhug. Meira en hjá Baugi og FL.
Auglýsingarnar virka öfugt
EyjanÉg er að velta fyrir mér hvort það væri betra fyrir flokkana að auglýsa mjög lítið – eða alls ekki. Maður er að velta því fyrir sér að kjósa einhvern flokk, er næstum kominn að niðurstöðu. Svo sér maður auglýsingu frá honum og þá hættir maður snarlega við. Þannig virka auglýsingarnar á mann þessa dagana.
