Á Alþingi að kjósa?
EyjanBjörgvin G. Sigurðsson leggur til að Alþingi kjósi um hvort farið verði í aðildarviðræður við ESB. Þetta er athyglisverð hugmynd. En ólíklegt að hún fái hljómgrunn hjá samstarfsflokknum VG. Og svo má kannski spyrja hvernig ESB lítur á aðildarumsókn sem kemur fram með þessum hætti, frá klofinni ríkisstjórn?
Hugmyndaráðuneytið
EyjanHér er fólk sem er að glíma við nýjar hugmyndir um hvernig megi endurreisa Ísland. Og hafa nýsköpun og frjótt hugarfar í fyrirrúmi. Þetta er mikilvægt.
Þegar umræðan hentar ekki
EyjanÞað fer mjög í taugarnar á stjórnmálamönnum þegar þeir geta ekki stjórnað fjölmiðlaumræðunni. Steingrímur J. vill ekki að fjallað sé um að ESB gæti verið eins og fleinn í stjórnarmyndunarviðræðunum. Svipuð voru viðbrögð Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben á kosninganótt þegar þeir kvörtuðu sáran undan því að of mikið hefði verið fjallað um spillingu og Lesa meira
Undanhaldið byrjað?
EyjanFyrrum framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar og nú þingmaður hennar, Skúli Helgason, skrifar og segist vilja Evrópumálin í „þverpólitískt ferli“. Hvað er það annað en enn ein nefndin? Er undanhaldið frá stóru orðunum byrjað hjá Samfylkingunni?
Sum atkvæði eru merkilegri en önnur
EyjanÞað er merkilegt að eftirlitsmenn frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu skuli gera athugasemd við ójafnt vægi atkvæða á Íslandi. Jú, svona hefur þetta alltaf verið. Stundum hefur ójafnvægið verið miklu meira, nú er bundið í lög að sumir megi ekki hafa meira en tvöfaldan atkvæðisrétt á við aðra. Alþingi hefur komist upp með að samþykkja Lesa meira
Klofningur eða hvað?
EyjanAmx vefurinn vandar Benedikt Jóhannessyni og Þorsteini Pálssyni ekki kveðjurnar. Þetta kallast Fuglahvísl, en hljómar fremur eins og skrækir hrægamma.
Krónustjórn
EyjanYfirlýsingar einstakra þingmanna í stjórnarliðinu flækja enn málin varðandi stjórnarmyndun. Nú segir Atli Gíslason að hann muni ekki styðja stjórn sem fer í aðildarviðræður. Árni Páll Árnason talaði um aðildarumsókn strax í maí á kosninganótt. Kannski þarf að snúa alveg við blaðinu? Og hefja myndun ríkisstjórnar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Eins og bent er Lesa meira
Þjóðstjórn?
EyjanStympingarnar milli VG og Samfylkingarinnar vegna Evrópumála eru mjög vondur fyrirboði um samstarf þessara flokka. Maður horfir aftur á árið 1978 þegar vinstri flokkarnir, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur, fóru í stjórn saman. Það er ófriðlegasta stjórnarsamstarf í sögu lýðveldisins og sprakk eftir eitt ár. Framsókn var með í þeirri stjórn – maður spyr hvort væri til Lesa meira
Stjórnarkreppa framundan?
EyjanUmmæli Steingríms J. um ESB og elítuna eru frekar slæmur upptaktur í stjórnarmyndunarviðræður. Það flökrar að manni að stjórnarkreppa kunni að vera framundan. Annað hvort bakkar VG eða Samfylkingin. Svo einfalt er það. Eftir því sem orðin verða stærri og yfirlýsingarnar digurbarkalegri er erfiðara að ná fram málamiðlun. Steingrímur kvartar undan því að ekki sé Lesa meira
ESB, elítan og stjórnarflokkarnir
Eyjan„Og ég verð bara að segja það ég gagnrýni einhliða, elítukennda umfjöllun ákveðinnar hirðar hér í fjölmiðlaheiminum í þessu máli.“ Þetta sagði Steingrímur J. í leiðtogaþætti sjónvarpsins áðan. Jóhanna brást illa við. En er þetta nokkuð annað en tilraun til að drepa málinu á dreif? Staðreyndin er sú að Samfylkingin er langstærsti stjórnmálaflokkurinn eftir kosningarnar. Hún hefur náð Lesa meira
