Að tapa fjötrunum
EyjanEitt sinn var talað um þá sem hefðu engu að tapa nema fjötrunum. Hér er athyglisverður pistill um landbúnaðinn. Íslenski landbúnaðurinn er reyrður í fjötra ofstjórnar og miðstýringar. Hvergi á byggðu bóli leggur ríkið fram jafn mikinn hlut til landbúnaðar. Bændaforystan og alls konar milliliðir hafa hreiðrað um sig í þessu kerfi, það er alið Lesa meira
Svínaflensufár
EyjanÞetta er bók sem er ágætt að grípa í stundum. Scared to Death: From BSE to Global Warming. Sýnir hvernig fjölmiðlar, stjórnmálamenn og sérfræðingar taka höndum saman um að hræða úr okkur líftóruna. Bókin er mótefni gegn þessu. Ekki það að maður hafi ekki áhyggjur af svínaflensunni. Ef maður les þessa samantekt á vef BBC Lesa meira
Neyðarlög um íbúðalán?
EyjanÞetta eru athyglisverðar tillögur hjá Gísla Tryggvasyni. Það er ekki nóg að bjarga fólki þegar það er farið fram af brúninni. Brustu ekki samningsforsendur þessara lána þegar gjaldmiðillinn hrundi og verðbólgan fór úr böndunum?
Hallærslegheit
EyjanÞað er eitt sem ég skil ekki í sambandi við orðumálið mikla. Hvers vegna að hengja krossa á sendimenn erlendra þjóða sem eru bara í vinnunni hérna og fá borgað fyrir það? Kannski er þetta gamaldags prótókoll, þeir sem eru með margar orður fá að sitja á fínni sætum í veislunum. En í raun er Lesa meira
Vondir siðir úr borgarstjórn
EyjanÞað er athyglisvert hversu margir þeirra pólitíkusa sem hafa þegið stóra styrki í prófkjörum koma úr borgarstjórninni í Reykjavík. Hún er gróðrarstía fyrir þetta. Þaðan koma hinir vondu siðir að talsverðu leyti. Og það á ýmislegt fleira eftir að koma úr kafinu. Í borgarstjórninni eru stjórnmálamennirnir í nálægð við eiginlegt úthlutunarvald; þeir geta deilt út Lesa meira
Hundur í óskilum, Gunnarshólmi, Gylfi Gísla, Ísfólkið og Ari Jósefsson
EyjanÍ kvöld er á dagskrá síðasta Kiljan á þessu misseri. Ætlunin er að taka aftur upp þráðinn í haust. Hljómsveitin Hundur í óskilum flytur sína útgáfu á Gunnarshólma eftir Jónas Hallgrímsson. Hjálmar Sveinsson segir frá bók sem fjallar um Gylfa Gíslason, merkan myndlistarmann, þáttastjórnanda og borgara í miðbænum í Reykjavík. Ágúst Borgþór Sverrisson rithöfundur segir Lesa meira
Skrítnar útstrikanir
EyjanÞað kemur dálítið einkennilega fyrir sjónir að Mörður Árnason skuli hafa orðið fyrir miklum útstrikunum í kosningunum. Eiginlega alveg óskiljanlegt. Mörður er fastur á skoðunum sínum, en hann er ekki grunaður um að hafa þegið óhreina peninga. Gestur Guðjónsson setur fram kenningu um þetta: Að stuðningsfólk Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur hafi strikað Mörð út til að Lesa meira
Dómsmálaráðuneytið
EyjanSennilega er nauðsynlegt að næsti dómsmálaráðherra komi úr röðum Vinstri grænna. Eða sé óháður utan úr bæ. Hann má varla koma úr hrunflokkunum, Samfylkingu, Framsókn eða Sjálfstæðisflokki. Þessir flokkar voru of tengdir útrásinni í gegnum styrki, fjárframlög – og almenna aðdáun. Þeir lágu marflatir fyrir henni – og er varla treystandi til að gera upp Lesa meira
Stefnuskrár tveggja flokka
EyjanÚr stefnuskrá Samfylkingarinnar, hún vill: „Hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið strax eftir kosningar og bera samninginn undir þjóðaratkvæði. Setja í stjórnarskrá ákvæði sem heimilar að fullveldi sé deilt með yfirþjóðlegum stofnunum og alþjóðastofnunum samkvæmt ákvörðun Alþingis. Slík ákvörðun tekur því aðeins gildi að sé staðfest í þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Og: „Aðild að ESB er lýðræðismál og mikilvægasta velferðarmál Lesa meira
Belafonte á grísku
Eyjan1965 sungu Harry Belafonte og Nana Mouskouri saman inn á plötu lög eftir Manos Hadjidakis, eitt helsta tónskáld Grikkja. Bæði sungu þau á grísku – líka Belafonte sem er frá Jamaíka. Hér er hugljúft lag við fallegt ljóð, Θάλασσα Πλατειά, eða Hafið víða. Söngur Belafontes er ótrúlega fallegur. Og hann fer vel með grískuna. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=-IOAkQMw948]
