Himininn er ekki að hrynja
EyjanEfasemdamaður um svínaflensuna. Bandaríski þingmaðurinn Ron Paul – sem líka er læknir. Paul taldi að svínaflensuótti væri úr allri hömlu árið 1976. Og hafði þá rétt fyrir sér. Sjá hér.
Kreppa
EyjanEconomist skrifar um íslensku kosningarnar. Fyrirsögnin er komin úr frægu lagi Dylans, Visions of Johanna. Í textanum er notað íslenska orðið kreppa – kannski getur það orðið alþjóðlegt heiti um svona ástand? Framlag okkar til hugtakasafns heimsins.
Tvö orð
EyjanTvö orð frá blómatíma íslensku kauphallarinnar rifjast upp, mikið notuð af greiningardeildum og viðskiptablaðamönnum. Leiðrétting. Þegar gengi hlutabréfa lækkaði. Loks urðum við svo fyrir hinni endanlegu leiðréttingu. Þroskamerki. Líka notað þegar hlutabréfaverð lækkaði, merkingin er sú að markaðurinn væri svo þroskaður að hann þyldi leiðréttingu (sjá að ofan).
Lynch í Silfrinu
EyjanKvikmyndaleikstjórinn frægi, David Lynch, verður gestur í Silfri Egils á sunnudag.
1. maí
EyjanEf einhvern tíma hefur verið tími til að fara í 1. maí göngu þá hlýtur það að vera á morgun. Ávarp fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna er óvenju skorinort: Íslenska efnahagshrunið varð ekki aðeins vegna þess að heimurinn í kringum okkur hrundi. Kerfishrunið hér innanlands varð fyrst og fremst vegna gríðarlegra mistaka. Þar er átt við einkavæðingu bankanna, Lesa meira
Gjaldþroti Íslands spáð 2006
EyjanÍ þessari grein um vaxtamunarviðskipti frá því í febrúar 2006 segir hreint út að Ísland muni verða gjaldþrota. Það voru semsagt ýmsir sem sáu þetta fyrir.
Ráðleggingar til vinstristjórnar, grein Jóns Steinssonar
EyjanJón Steinsson, hagfræðingur í Bandaríkjunum, hefur brillerað í málflutningi sínum síðan í hruninu. Ég held sé óhætt að segja að þar fari einn okkar fremsti maður. Jón skrifaði þessa grein í Moggann á mánudaginn. Hún er eiginlega þess virði að hún sé lesin tvisvar. — — — Mánudaginn 27. apríl, 2009 – Aðsent Lesa meira
Ekki vinstri eða hægri
EyjanHér er ný grein eftir Michael Hudson þar sem hann fjallar meðal annars um skuldastöðu Íslands, horfurnar á því borga skuldirnar, ESB og fiskveiðikvóta. Hann vill meina að kosningarnar hafi ekki snúist um vinstri eða hægri.
Pótemkín
EyjanÞeir voru að sýna Beitiskipið Pótemkín á Arte í gær. Langt síðan ég hef séð hana. Myndin er tímalaus snilld. Ótrúlega frumleg, framsækin – og nútímaleg – kvikmyndagerð. Myndin er frá árinu 1925, eftir Sergei Eisenstein, einn helsta snilling kvikmyndasögunnar. Og hafði ómæld áhrif, ekki síst klippingin. Hér er frægasta atriðið, þrepin í Odessa – Lesa meira
Slæmur AG
EyjanGuardian skrifar í leiðara um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Segir að hann sé jafn slæmur og fyrr.
