Jóhannes Björn í Silfrinu
EyjanMeðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verður Jóhannes Björn. Hann hyggur á endurútgáfu frægrar bókar sinnar sem nefnist Falið vald. Jóhannes, sem er búsettur í Bandaríkjunum, hefur áður verið gestur í Silfrinu og hafa viðtöl mín við hann vakið mikla athygli.
Lofgjörð um íslensku leiðina, ár 2007
EyjanHér er dásamleg grein frá 9. ágúst 2007. Hún ber yfirskriftina: Iceland’s Flat Tax and Other Supply-Side Reforms Boost Growth, Generate Significant Laffer Curve Effects Greinin er skrifuð af dr. Hannesi H. Gissurarsyni við Háskóla Íslands og dr. Daniel Mitchell við Katóstofnunina. Þetta eru svokölluð lykilatriði í greininni (takið eftir því sem segir um eign Lesa meira
Tryggvi og bindisskyldan
EyjanTryggvi Þór Herbertsson er ekki hrifinn af því að þingmenn þurfi ekki lengur að ganga með bindi. Mér þykir þetta allt í lagi. En ef Tryggvi mætir í gallanum sem hann var í þegar hann var hljóðmaður hjá Bubba og Greifunum, ja, þá má vera að ég skipti um skoðun.
Breska þingið í forinni
EyjanDálkahöfundurinn hvassyrti, Simon Heffer, skrifar í Daily Telegraph að breska þingið hafi aldrei sokkið dýpra. Það þurfi anda Olivers Cromwell til að hífa það upp úr drullunni, annars sé kannski rétt að fara að dæmi Guy Fawkes sem á sínum tíma reyndi að kveikja í þinghúsinu. Heffer segir að almenningur í Bretlandi vilji að þingmenn Lesa meira
Talað tungum tveim
EyjanYasser Arafat var frægur fyrir að nota eitt til heimabrúks og annað þegar hann tjáði sig við umheiminn. Hann fór með eina rullu þegar hann talaði við fólkið á Gaza og aðra þegar hann talaði við heimspressuna. Ég velti fyrir mér hvort eitthvað svipað sé í gangi hér. Að sumir stjórnmálamenn – og hagsmunagæslumenn – Lesa meira
Ferskur eða fullunninn fiskur
EyjanÞað er með fisk eins og flesta matvöru að við viljum hafa hana sem ferskasta. Við viljum helst ekki að hún hafi verið geymd lengi eða krukkað hafi verið mikið í hana. „Unnin matvara“ eru orð sem hljóma ekki vel í eyrum. Þess vegna virka hugmyndir um að auka fullvinnslu afla hér á Íslandi einkennilega, Lesa meira
Hagfræði eða hindurvitni
EyjanJón Baldvin Hannibalsson leggur út af William K. Black, hagfræðingnum og fjármálaeftirlitsmanninum bandaríska sem var í Silfri Egils á sunnudag. — — — SWINDLER´S LIST: HAGFRÆÐI EÐA HINDURVITNI? Eftir Jón Baldvin Hannibalsson Það er ekki óvenjuleg sjón nú til dags, að sjá viðskiptahölda leidda í handjárnum í tugthúsið – þ.e.a. s. á sjónvarpsskjám í Bandaríkjunum. Lesa meira
Hverjir eiga jöklabréfin?
EyjanFriðrik H. Guðmundsson skrifar athyglisverðan pistil um jöklabréfin alræmdu sem eru eitur hér í efnahagslífinu. Í athugasemdum við pistil hans má m.a. lesa þetta: 1) Hverjir eru 20 stærstu eigendur jöklabréfa? Svar óskast frá Seðlabanka. 2) Hverjir eru 20 stærstu útgefendur jöklabréfa? Svar óskast frá Seðlabanka. 3) Hversu mikið af jöklabréfum eiga lífeyrissjóðirnir samanlagt og hverjir Lesa meira
Búlgarska framlagið
EyjanVið fylgdumst með Evróvisión í gær. Og ég verð að segja að ég hef aldrei séð neitt í líkingu við atriði búgarska hópsins í Star Trek/miðaldabúningunum. Enda tók ég upp símann í fyrsta sinn frá upphafi þessarar keppni og kaus.
Bókhaldsbrellur, fjársvik og hvítflibbabrot
EyjanFundurinn með William K. Black í Háskólanum í gær hefur fengið litla umfjöllun í fjölmiðlum. Það er miður, því margt merkilegt kom þar fram – ég tel að flestir fundarmenn geti verið sammála um það. Þekking hans á bókhaldsbrellum, fjársvikum og hvítflibbabrotum er óviðjafnanleg, fyrir utan að maðurinn er skarpur og skemmtilegur. Már Wolfgang Mixa Lesa meira
