Á ríkið að setja upp eignasölufélag?
EyjanÞetta birtist hér á síðunni 5. mars síðastliðinn. Á fullt erindi ef miðað er við umræður í þinginu í dag. — — — Í dag birtist í Morgunblaðinu ein af hinum óskiljanlegu viðskiptafréttum. Fréttin fjallar um áætlun sem lögð hefur verið fram um hvernig megi endurreisa eignarhaldsfélagið Exista. Það vantar alla greiningu í fréttina og Lesa meira
Enginn fyrirvari
EyjanHluthafafundur hjá Exista er auglýstur í Morgunblaðinu í dag, hjá bíóauglýsingunum, á blaðsíðu 34. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 26. maí, eftir rétta viku, í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla, klukkan 10. Í auglýsingunni segir að tillögur frá hluthöfum sem bera eigi upp á hluthafafundi skuli vera „komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir Lesa meira
Við eigum hann
EyjanHelgi Seljan var með þessa úttekt fyrningarleiðinni í Kastljósi. Þarna er talað við Sigurgeir Brynjar Kristjánsson og Þórólf Matthíasson. Hápunkturinn er án efa þar sem útgerðarmaðurinn Sigurgeir Brynjar segir um þorskinn í sjónum: „Við eigum hann.“ Það er í lok umfjöllunarinnar.
Jens
EyjanVið Lára Hanna komumst að því að við hefðum bæði verið hjá sama kennaranum, Jens Hallgrímssyni í Vesturbæjarskóla. Hann var þá í húsi gamla Stýrimannaskólans við Öldugötu, var oft kallaður Öldugötuskóli. Við spjölluðum saman í blíðunni á Austurvelli og vorum sammála um að Jens hefði verið besti kennari í heimi. Hann kenndi í Vesturbæjarskóla í Lesa meira
Afvegaleiddir kapítalistar
EyjanDV er með frétt á forsíðu um hvernig Einar Sveinsson og Karl Wernersson lánuðu sjálfum sér miljarða til að kaupa hluti í Icelandair þegar þeir voru eigendur Íslandsbanka/Glitnis. Samkvæmt fréttinni ganga þeir reyndar skuldlausir frá borði þegar bankarnir leysa til sín hlutabréf þeirra. Einar var stjórnarformaður Glitis fram á mitt ár 2007. Á forsíðu Lesa meira
Fellur ríkisstjórnin?
EyjanMaður spyr sig eftir þessa ræðu Guðfríðar Lilju hvort Samfylkingin sé ekki örugg á því að tryggja ESB umsókninni þingmeirihluta. Ef ekki – ef þingsályktunin verður felld – ja, þá hlýtur fall ríkisstjórnarinnar að blasa við. Eða mun Samfylkingin taka þeirri niðurstöðu – og halda áfram?
Ríkið gaf og ríkið tók
EyjanGunnlaugur Sigmundsson er einn af spillingarmönnunum sem auðguðust á gráa svæðinu milli stjórnmála og viðskipta. Kögunarhneykslinu var sópað undir teppi – en það er ekki gleymt. Gunnlaugur naut þess að tengjast Framsóknarflokknum. Flokkurinn gerði hann ríkari, nánast gaf honum fyrirtæki sem hann stórauðgaðist á. Í reynd má segja að hann hafi verið í þeirri stöðu Lesa meira
Aðlögunarhæfni
EyjanÉg veit ekki hver er að gefa erlendum fjölmiðlum þá sérstæðu sögu að Auður Capital muni bjarga Íslandi úr kreppunni. Nú síðast birtir BBC þessa þvælu, áður hefur hún birst í breska blaðinu Independent, minnir mig. Eigendur fyrirtækisins voru stórir leikendur í banka- og útrásarruglinu eins og hefur margsinnis komið fram. Fræg er þessi skýrsla Lesa meira
Rökke
EyjanÉg sé að norski auðkýfingurinn Kjell Inge Rökke er einn þeirra sem bjóða í olíuleit á Drekasvæðinu. Þessa grein skrifaði ég fyrir nokkrum árum, þegar Rökke var í vandræðum – segir meðal annars af stuttum og óvæntum kynnum okkar: — — — Rökke, ég og Jóhann próki Ná tali af Rökke, voru fyrirmælin sem fréttastjórinn Lesa meira
Rotnandi hræ
EyjanMadeleine Bunting skrifar í Guardian og segir okkur hafa verið að lifa skeið sem hún kallar The Age of Entitlement. Það hafi einkennt bæði viðskiptalíf og stjórnmál, tíma þeirra sem voru nógu klárir, heppnir eða ósvífnir til að sveigja fram hjá reglunum. Nú segir hún að þessi tími sé eins og rotnandi hræ. „This has Lesa meira
