Gráa svæðið minnkar
EyjanÉg held það séu talsverðar líkur á að Gunnar Birgisson segi af sér í næstu viku eða þarnæstu. Eins og ágætur maður sem ég talaði við orðaði það – gráa svæðið á Íslandi hefur dregist saman. Það er minna svigrúm fyrir einkennilega stjórnarhætti. Jafnvel þótt Gunnar virðist hafa gott tak á framsóknarmanninum sem er forseti Lesa meira
Líka þar?
EyjanÞað sem allir spyrja: Var ekki líka gerð húsleit á Bessastöðum vegna Al Thani málsins?
Þeir félagarnir
EyjanÞeir eru búnir að steypa Íslandi í botnlaust skuldafen. Við borgum og borgum fyrir þá. En Björgólfur Thor mætir í snekkjupartí í Cannes. Og Jón Ásgeir skiptir um nafn og kennitölur. Þetta heitir að kunna ekki að skammast sín.
Gagnsæi
EyjanÁrni Guðmundsson kom í Silfur Egils í vetur. Hann var með hugmyndir um hvernig væri hægt að standa að skuldafskriftum vegna fyrirtækja sem eru í vandræðum. Ég ætla að birta þetta enn einu sinni – og það er ærið tilefni til – í ljósi upphrópana um ríkissósíalisma og í ljósi þess hvernig mál eru að Lesa meira
Decode og braskið
EyjanDecode Genetics var fyrsta svikamylla Hannesar Smárasonar. Að mörgu leyti er þetta frábært fyrirtæki, og það er mjög mikilvægt að starfsemi þess haldi áfram – á Íslandi. Helst á að innlima það í háskólasamfélagið. En þegar reynt var að selja Íslendingum þá hugmynd að þarna væri ofboðslegur gróðavegur – á gráa markaðnum – þá brast Lesa meira
Lénskerfi
EyjanElliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist ekki ganga erinda sérhagsmuna. Hann um það. Vandinn við kvótakerfið er ekki bara að aðferðin við úthlutunina var óréttlát, að búið er að færa hann í bækur sem eign þótt lögin segi að hann sé sameign þjóðarinnar, að búið er að veðsetja fiskinn í sjónum mörg ár fram í Lesa meira
Vanmáttur gegn hvítflibbabrotum
EyjanÍ grein á vefnum Global Research er vitnað í William K. Black sem var gestur í Silfrinu fyrir stuttu. Hann talar um aðgerðaleysi og vanmátt yfirvalda gegn hvítflibbaglæpum: Criminologist William K Black, a former bank regulator and expert on crimes committed by the men at the top—so-called “control frauds” referencing the practices of CEOS in Lesa meira
Tunnuspyrna
EyjanGóður maður benti á að umræðan um ESB á Íslandi væri svona: [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=Yth124e4d2A] Og Jónas hittir beint í mark.
Kristján í Últímu og Farsældarríkið
EyjanKristján Friðriksson í Últímu var einn af mínum uppáhaldsmönnum á unglingsárum. Dóttir hans, Sigrún, var bekkjarsystir mín og vinkona, og í gegnum hana kynntist ég Kristjáni og fjölskyldunni, syninum Friðriki sem spilaði listavel á píanó og átti gott plötusafn, og þremur bráðskemmtilegum systrum, Guðrúnu, Ásrúnu og Heiðrúnu. Að ónefndri móðurinni á heimilinu, Oddnýju. Heimili Lesa meira
Gengið fellur stöðugt
EyjanEvran 178, pundið 202, dollarinn 127 – gengisvísitalan 231 stig. Hvar endar þetta? Í mars var gengisvísitalan komin niður í 185 stig – evran komin niður í 140 krónur. Samt eru ströng gjaldeyrishöft. Á Seðlabankinn að grípa inn í þetta – eða er það vitandi vits að gengið er látið falla?
