fbpx
Mánudagur 02.mars 2026

Óflokkað

Lán eða bankarán?

Lán eða bankarán?

Eyjan
14.06.2009

Banki lánar félagi sem er stærsti eigandi bankans upphæð sem nemur 71,8 milljörðum króna. Og flestir stærstu skuldarar bankans tengjast þessu félagi. Ég meina, erum við að tala um lán eða bankarán?

Varðliðar kerfisins komnir á kreik

Varðliðar kerfisins komnir á kreik

Eyjan
14.06.2009

Lára Hanna birtir þetta yfirlit um þá sem vega að Evu Joly og Sigríði Benediktsdóttur. Og Andrés Jónsson skrifar þetta um þöggunina, veruleikafirringuna og samtrygginguna í valdakerfinu hér og hvernig menn tala þegar engir eru hljóðnemarnir, um Evu Joly og fleiri. Hjá Láru Hönnu getur meðal annars að líta grein Agnesar Bragadóttur úr Mogganum í Lesa meira

Bréf um embættismenn, Evu Joly, Haga og snjallar tillögur sjálfstæðismanna

Bréf um embættismenn, Evu Joly, Haga og snjallar tillögur sjálfstæðismanna

Eyjan
14.06.2009

Örstutt hugleiðing um stöðu íslenska embættismannakerfisins og siðferðisvanda okkar þjóðar Við höfum nú þrjú augljós dæmi um okkar æðstu embættismenn sem hafa hangið eins og hundur á roði í stöður sínar í krafti laga og reglna. Talað er um lög um opinbera starfsmenn eða lög um Seðlabankann eða ríkissaksóknara. Hér er ég augljóslega með í Lesa meira

Sigmundur að flýta sér

Sigmundur að flýta sér

Eyjan
13.06.2009

Sigmundur Davíð gengur mjög ötullega fram í sinni stjórnarandstöðu. Í dag segir hann að fjari undan ríkisstjórninni – í vikunni sagði hann að markmið sitt væri að fella hana. Jú, almennt hlýtur það að vera markmið stjórnarandstöðuflokka. En kannski ekki endilega mánuði eftir að ríkisstjórn er tekin við. Er ekki venja að ríkisstjórnir fái aðeins Lesa meira

Z

Z

Eyjan
13.06.2009

Ég horfði í gær á fræga kvikmynd sem heitir Z. Hún er eftir grísk/franska leikstjórann Costa-Gavras og fjallar um þegar frægur stjórnmálamaður, læknir, íþróttagarpur, vinstrisinni og friðflytjandi, Gregoris Lambrakis, var myrtur af hægri öfgamönnum í Thessaloniki árið 1963. Þetta er einn frægasti atburður í grískum stjórnmálum. Lambrakis var sannkallaður landaljómi sem naut vinsælda, virðingar og Lesa meira

Fyrrverandi forstjóri FME og ábyrgðin

Fyrrverandi forstjóri FME og ábyrgðin

Eyjan
13.06.2009

Bréf Jónasar Fr. Jónssonar er birt á Pressuvefnum og kemur ekki sérlega á óvart – vefurinn var  stofnaður sérstaklega til að verja skuldakónga og hirðmenn þeirra, en úr þeim hópi er sjálfur ritstjóri Pressunnar, og gengur einarðlega fram í að gera alla alvöru tilburði til að rannsaka mál tortryggilega. Þar birtist nú grein eftir grein Lesa meira

Bagger dæmdur

Bagger dæmdur

Eyjan
12.06.2009

Þeir eru snarir í snúningum Danir. Það er búið að dæma svindlarann Stein Bagger í sjö ára fangelsi. Hann var handtekinn í desember. Þetta er næstum jafnlangur tími og það tók ríkissaksóknara á Íslandi að koma máli sem varðar Kaupþing yfir til embættis sérstaks saksóknara.

Tölvupóstar segja söguna

Tölvupóstar segja söguna

Eyjan
12.06.2009

Hér er nokkuð skondin grein í Daily Telegraph. Samkvæmt henni er slóðin sem tölvupóstar skilja eftir sig lykillinn að því að komast að sannleikanum um fjármálakreppuna: „There were no secret cameras recording these events, but it turns out that we have the next best thing: the frank emails the main players were indiscreet enough to Lesa meira

Í þá gömlu góðu daga

Í þá gömlu góðu daga

Eyjan
12.06.2009

Þetta er stórkostleg mynd sem Gunnar Axel birtir, frá því þegar Landsbankinn fékk viðurkenningu fyrir bestu árskýrsluna. Í september 2008! Þeir eru glaðir á svip, Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Sigurjón Árnason bankastjóri. Í áliti dómnefndarinnar stóð: “Ársskýrsla Landsbankans er stílhrein og vönduð að allri gerð. Framsetning er skýr og myndefni styður vel við texta. Lesa meira

Mest lesið

Ekki missa af