Löggan
EyjanÞað má ekki gerast að lögregla komist ekki í útköll vegna manneklu. Og þótt fjölgað sé í efnahagsbrotadeild má það ekki koma niður á almennri löggæslu eða öryggi borgaranna. En menn sem þekkja til í lögreglunni segja mér að þetta sé ekki einungis spurning um fjársvelti. Að óvíða séu jafn margir yfirmenn í lögregluliði og Lesa meira
Tvær skýrslur um Ísland
EyjanSvafa Grönfeldt er í stýrihópi sem á að semja sóknaráætlun fyrir Ísland. Þetta er auðvitað hið besta mál. En kannski hefði verið hægt að nota gömlu skýrsluna hennar Svöfu. Þessa sem fjallaði um hvað Íslendingar væru frábærir, var skilað fáum dögum fyrir hrun – og mærði íslenskt atvinnulíf fyrir kraft og áhættusækni. Nefndarmenn gætu kannski Lesa meira
Með æluna upp í háls
EyjanÞræturnar um Icesave eru að taka á sig súrrealískar myndir, eins og til dæmis upphlaupið um lögfræðikostnað Breta sem síðan reynist vera kostnaður við að gera upp 400 þúsund bankareikninga. Við höfum varla tíma fyrir svonalagað. Þjóðin er að fá æluna upp í háls. Stjórn og stjórnarandstaða þurfa að ná saman um leið út úr Lesa meira
Flótti frá Spáni
EyjanGuardian skrifar um Breta sem keyptu sér hús á sólarströndum Spánar, en eru nú að snúa heim á krepputímum. Hvernig ætli sé með alla Íslendingana sem hafa keypt fasteignir þarna suðurfrá?
Fons
EyjanVísir segir frá því sem var Íslandsmet í hagnaði, upp á 80 milljarða króna, í ágúst í fyrra. En breyttist í gjaldþrot upp á 20 milljarða á innan við ári. Spurning: Hvað varð um peningana? Eða er þetta allt eintóm blekking?
Gamli sáttmáli
EyjanNú tala margir um Gamla sáttmála. Meðal annars Þór Saari í fréttunum í gærkvöldi. Fæstir virðast hafa kynnt sér út á hvað samningurinn gekk, umfram það sem stóð í þjóðrembingslegum barnaskólalærdómi. Því Gamli sáttmáli kann að hafa verið ágætur á sínum tíma þegar íslenskar höfðingjaættir bárust á banaspjótum – raunar hefur verið sett fram sú Lesa meira
Þrjú dæmi um skelfilegt rugl
EyjanÞað er mikið rifist um Icesave og geysileg svikabrigsl uppi vegna þess. En það eru fleiri mál af svipuðum toga sem valda okkur þungum búsifjum. Til dæmis að Seðlabanki Íslands var rekinn í þrot á síðasta ári vegna svokallaðra endurhverfra viðskipta við fjármálafyrirtæki. Tapið hljómaði upp á 350 milljarða króna. Ríkið þurfti að koma Seðlabankanum Lesa meira
Betra líf
EyjanÞví er slengt fram sem vandamáli að íbúar veraldarinnar séu að verða eldri. En Zoe Williams hjá Guardian hefur rétt fyrir sér. Það eru bara þröngsýnustu hagfræðingar sem hugsa svona. Þetta er gleðiefni. Við verðum eldri og hraustari, lífshorfurnar eru betri og fólk þarf ekki að hrúga niður börnum af því það er eina tryggingin Lesa meira
Skór eins og allir eru í
EyjanÁ heimili mínu eru Crocs kallaðir „skór eins og allir eru í“. Þannig er mál með vexti að fyrir tveimur árum gaf amma Kára honum svona skó. Mér varð á að segja að ég hefði aldrei séð ljótari skófatnað. Þá sagði amman: „En það eru allir í svona skóm!“ Ég tek fram að hún Lesa meira
Horfin sjónarmið
EyjanEitt af því sem gerbreyttist við hrunið voru áform um uppbyggingu Reykjavíkur. Þau hurfu eins og dögg fyrir sólu. Tónlistarhúsið er tákn um það. Það stendur eins og flak út í höfninni, öll plön um uppbyggingu í kringum húsið eru horfin út í veður og vind. Nú er verið að malbika bílastæðið þar sem áttu Lesa meira
