Stelpurnar okkar
EyjanÞóra Tómasdóttir, vinkona mín og samstarfskona af RÚV, er að frumsýna myndina sína um íslenska kvennalandsliðið í fótbolta í Háskólabíói í kvöld. Hérna er treilerinn úr myndinni. [youtube=http://www.youtube.com/watch?v=INxLhdiQsmI]
Hvað varð um gegnsæið?
EyjanÉg birti hér á síðunni í gærkvöldi fyrirvara við Icesave samninginn sem ræddir hafa verið í fjárlaganefnd Alþingis. Þetta birtist svo víðar í morgun, meðal annars í Morgunblaðinu. Stjórnarliðar á Alþingi bregðast illa við þessu eins og sjá má á þessari frétt RÚV. Það var jafnvel rætt um að leki af þessu tagi varðaði við Lesa meira
Hinir ósnertanlegu
EyjanMenn eru dæmdir fyrir að valda umferðarslysum af gáleysi, læknar þurfa að bera ábyrgð á mistökum sínum, en menn sem setja heilar þjóðir í skuldanauð í einhverju rugli, þeir halda bara áfram eins og fínir menn. Sverrir Jakobsson sagnfræðingur skrifaði merkilega grein í Fréttablaðið fyrr í vikunni um takmarkaða ábyrgð hlutafélaga og eigenda þeirra. Því Lesa meira
Sorgleg Borgarahreyfing
EyjanÞá er það orðið nánast formlegt, Borgarahreyfingin er búin að vera. Þetta bréf þingkonunnar Margrétar Tryggvadóttur er síðasti naglinn í líkkistuna. Svo er greinilegt að félagsmenn eru að tínast burt einn af öðrum. Þingmenn mæta ekki á fundi. Formaður hreyfingarinnar sagði af sér í nótt með harðorðu bréfi: „Draumurinn snérist upp í andhverfu sína og Lesa meira
Fyrirvararnir sem eru ræddir í fjárlaganefnd
EyjanÞað hvílir leyndarhjúpur yfir þeim fyrirvörum sem fjárlaganefnd fjallar um vegna Icesave samningsins. Sagt er að fyrst eigi að kynna Bretum og Hollendingum fyrirvarana sem fjárlaganefnd gerir, áður en málið verður lagt fyrir Alþingi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kallaði þetta „svik við þjóðina“ í fréttum í kvöld, Bjarni Benediktsson virtist tvístígandi, en Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur Lesa meira
Samdrætti lokið í Þýskalandi og Frakklandi
EyjanÞví var haldið fram á Íslandi eftir hrun að landið yrði fyrst inn í kreppuna og fyrst út úr henni. Þessu sama var haldið fram í Bretlandi, að það yrði framarlega inn í kreppu og kæmist fljótt út. Fjármálakerfið þar væri svo sveigjanlegt. Hagtölur bera þessu ekki vitni. Í Bretlandi valda samdráttur í ofvöxnu fjármálakerfi Lesa meira
Hvar var Kjartan?
EyjanÉg spurði í bloggfærslu fyrr í dag hvort það yrði ekki öðruvísi hópur en síðast sem myndi mótmæla á Austurvelli. Og jú, það kom í ljós. Davíð Oddsson var þarna. En var Kjartan Gunnarsson nokkuð með honum?
Ysta hægrið
EyjanTímaritið Time fjallar um uppgang öfgahægrimanna á samdráttartímum í Evrópu. Þeir nærast á óánægjunni. Getum við átt von á svona hópum hérna – eða láta þeir sér nægja bloggið?
Bjartur og sjálfstæðið
EyjanMér var bent á ummæli eftir kunnan bónda og sveitarstjórnarmann úr VG, Þorgrím E. Guðbjartsson, en þau birtust í viðtali við hann í Morgunblaðinu um helgina. Þorgrímur segir að staða bændastéttarinnar sé slæm, bændur geti eiginlega ekki lifað af búskap sínum, en samt sé hann „sjálfstæður maður“ eins og Guðbjartur Jónsson í Sumarhúsum, sögupersóna Halldórs Lesa meira
Allt annar hópur?
EyjanBoðað er til mótmælafundar vegna Icesave á Austurvelli síðdegis í dag. Sjálfur verð ég staddur á Hólum á þessum tíma, og mun ekki geta kannað þetta sjálfur. En það væri forvitnilegt að sjá hvernig samsetning hópsins er önnur en í „búsáhaldabyltingunni“ í vetur. Annars er hérna ansi góð skopmynd eftir Halldór Baldursson, úr Mogganum, sem Lesa meira
