Fluttur á bráðamóttöku eftir árekstur rafmagnshjóls og rafhlaupahjóls
Í nógu hefur verið að snúast í dag hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en meðal verkefna dagsins var árekstur rafmagnsreiðhjóls og rafhlaupahjóls. Ökumaður annars hjólsins var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar sem nær yfir tímabilið frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.