Fjallað hefur verið um innrotafaraldur sem geisað hefur í sumar í miðborg Reykjavíkur og næsta nágrenni en í dag var tilkynnt um innbrot eða þjófnað á umráðasvæði allra fjögurra lögreglustöðvanna á höfuðborgarsvæðinu, að undanskilinni einni stöð.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu.
Meðal verkefna lögreglustöðvar 1 sem sér um löggæslu í austurbæ, miðbæ og vesturbæ Reykjavíkur og á Seltjarnarnesi var tilkynning um innbrot en málið er sagt í rannsókn.
Lögreglustöð 2 sér um Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes. Meðal verkefna dagsins á stöðinni er ein tilkynning um innbrot og önnur tilkynning um þjófnað, bæði mál eru í rannsókn.
Innbrot, sem er til rannsóknar, var einnig meðal verkefna dagsins hjá lögreglustöð 4 sem sér um löggæslu í Grafarvogi, Árbæ, Grafarholti, Mosfellsbæ og Árbæ.
Innbrota er hins vegar ekki getið í upptalningu á helstu verkefnum dagsins hjá lögreglustöð 3 sem sér um Kópavog og Breiðholt.