Mynd
Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Við erum stödd í miðju bankaráni. Lögreglan er með grunaða og er að reyna að hafa upp á þýfinu og óskar skiljanlega eftir því að þrjótarnir verði settir í gæsluvarðhald. Bregður þá svo við að bæði Héraðsdómur og Landsréttur komast að þeirri niðurstöðu að engin ástæða sé til að loka mennina inni.