Annar vespuræningjanna úrskurðaður í gæsluvarðhald
FréttirÍ tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að annar mannanna sem handteknir voru fyrir að fara um höfuðborgarsvæðið á vespu og ræna peningum og öðrum verðmætum, annars vegar af hjónum sem voru í göngutúr og hins vegar af konu sem var að taka peninga út úr hraðbanka, hafi að hennar kröfu, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, verið Lesa meira
TikTok-maðurinn verður áfram í gæsluvarðhaldi – Kallaði sig „Fljúgandi grísinn“
PressanÞann 18. maí síðastliðinn handtók lögreglan í Kaupmannahöfn 29 ára mann vegna gruns um sjö gróf kynferðisbrot, þar á meðal nauðganir, gegn ungum stúlkum. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Á mánudaginn fór lögreglan fram á að gæsluvarðhaldið yrði framlengt og varð dómarinn við því og úrskurðaði manninn í áframhaldandi gæsluvarðhald til 10. ágúst. Maðurinn neitar Lesa meira
Farið fram á gæsluvarðhald vegna manndráps í Kórahverfi
FréttirLögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í dag fara fram á gæsluvarðhald yfir einum manni vegna rannsóknar á manndrápi í Kórahverfi í Kópavogi í gær. Um erlendan ríkisborgara er að ræða, karlmann, sem var handtekinn í gær ásamt tveimur öðrum. Fréttablaðið skýrir frá þessu. Eins og DV skýrði frá í gær lést karlmaður um þrítugt á Landspítalanum Lesa meira
Manndrápið í Rauðagerði – Úrskurðaður í gæsluvarðhald
FréttirKarlmaður á fertugsaldri var í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 19. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á manndrápi í austurborginni um miðnætti á laugardaginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eins og fram hefur komið í fréttum var karlmaður á fertugsaldri skotinn til bana við heimili Lesa meira
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um manndráp
FréttirHéraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í gærkvöldi karlmann um þrítugt í gæsluvarðhald til 17. apríl að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan krafðist gæsluvarðhalds vegna rannsóknar á andláti konu um sextugt sem fannst látin í heimahúsi aðfaranótt mánudags. Maðurinn var handtekinn á vettvangi. Karlmaður á sextugsaldri, sem einnig var handtekinn á vettvangi, hefur verið látinn laus.
Guðmundur krefst 60 milljóna í bætur vegna aðgerða lögreglunnar
FréttirGuðmundur R. Guðlaugsson hefur stefnt íslenska ríkinu vegna atvinnumissis sem hann varð fyrir í kjölfar fjölda þvingunarráðstafana lögreglu gegn honum fyrir tæpum áratug. Þessar þvingunarráðstafanir beindust að ósekju gegn honum í tengslum við rannsókn á fíkniefnamisferli sonar hans. Guðmundur krefst tæplega 60 milljóna í skaðabætur. Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag. Guðmundi voru dæmdar tvær Lesa meira
