Lifði af 3.000 kílómetra ferð með þreföldum morðingja
PressanNýlega fór Laura Johnson, 34 ára, í hádegisverðarhlé en hún starfar í íþróttavöruverslun í Oregon í Bandaríkjunum. Hún var rétt komin út á bílastæðið við verslunina þegar karlmaður beindi skammbyssu að henni. „Sestu inn og keyrðu,“ sagði hann ískaldur. Þetta var upphafið að 3.000 kílómetra ökuferð um fimm ríki Bandaríkjanna. The Washington Post skýrir frá þessu. Sá sem beindi Lesa meira
Bandarísk yfirvöld tóku yfir heimasíður tengdar Íran
PressanBandarísk yfirvöld hafa tekið yfir fjölda heimasíðna sem tengjast Íran. Þar á meðal heimasíður tveggja ríkisfjölmiðla, Press TV og al-Alam. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðunum þar sem segir að „bandarísk yfirvöld hafi lagt hald á vefsíðuna“. Vísað er til bandarískra laga um refsiaðgerðir gegn Íran í texta á síðunum og neðst er opinbert innsigli bandaríska viðskiptaráðuneytisins Lesa meira
Ný tíðindi af 11 ára gömlu morðmáli
PressanÁ milli jóla og nýárs 2010 hvarf Hailey Dunn, 13 ára, sporlaust. Hún bjó í Colorado City í Texas. Bæjarbúum var illa brugðið við þetta og leituðu ákaft að henni en hún fannst ekki. Nokkru eftir hvarf hennar sagðist lögreglan telja að hún væri látin og 2013 var það staðfest þegar líkamsleifar hennar fundust nærri vatni. Ekki tókst að leysa málið Lesa meira
19. júní er nýr frídagur í Bandaríkjunum
PressanÁ þriðjudaginn samþykkti öldungadeild Bandaríkjaþings að gera 19. júní að almennum frídegi til minningar um afnám þrælahalds á sjöunda áratug nítjándu aldar. Dagurinn er þekktur sem Juneteenth í Bandaríkjunum og telja margir hann vera „hinn sjálfstæðisdag þjóðarinnar“. Með endalokum þrælahaldsins losnuðu milljónir svartra úr ánauð. Öldungadeildin samþykkti frumvarp um að gera daginn að almennum frídegi með öllum Lesa meira
Yfirborð Meadvatns hefur aldrei verið eins lágt – Vatnsskortur yfirvofandi
PressanÍ apríl sendu yfirvöld frá sér aðvörun um að hugsanlega verði vatnsskortur í suðvesturhluta Bandaríkjanna á næsta ári vegna lítils vatn í Meadvatni en það er eitt stærsta manngerða vatn heims og stærsta vatnsbólið í Bandaríkjunum. Vatnsmagnið í því náði sögulega lágu gildi í síðustu viku en miklir þurrkar hafa herjað á suðvesturhluta Bandaríkjanna. CNN segir að aldrei Lesa meira
Myrti vinkonu sína með augndropum
PressanÞann 3. október 2018 hringdi Jessy Kurczewski, 37 ára, í neyðarlínuna í Milwaukee og tilkynnti að vinkona hennar andaði ekki. Þegar lögreglan kom á vettvang sat vinkonan í hægindastól og var hún látin. ABC News skýrir frá þessu. Á bringu hennar var „gríðarlegt magn“ muldra pilla og við hlið hennar lágu mörg lyfseðilsskyld lyf. Milwaukee Sentinel Journal segir að litið Lesa meira
Margvísleg mistök í aðdraganda árásarinnar á bandaríska þinghúsið
PressanÍ fyrstu skýrslu, og líklegast einu skýrslu, öldungadeildar Bandaríkjaþings um árás stuðningsmanna Donald Trump á þinghúsið þann 6. janúar síðastliðinn kemur fram að margvísleg mistök hafi verið gerð í aðdraganda árásarinnar og á meðan átök stóðu yfir. Í skýrslunni er haft eftir lögreglumönnum að engin sameiginleg stefna hafi verið mörkuð um hvernig ætti að koma í veg Lesa meira
Leynilegt app lögreglunnar varð mörg hundruð glæpamönnum að falli
PressanÍ samvinnu við bandarísku alríkislögregluna tókst áströlsku lögreglunni að komast inn í samskipti fjölda glæpagengja. Til þess var notast við dulkóðað app sem lögreglan bjó til. Á síðustu dögum hafa mörg hundruð glæpamenn um allan heim verið handteknir í tengslum við rannsókn málsins en það er sagt eitt stærsta mál tengt skipulögðum glæpasamtökum sem lögreglan Lesa meira
„Heimsfaraldursflóttamenn“ streyma að landamærum Bandaríkjanna
Pressan„Heimsfaraldursflóttamenn“ streyma nú að bandarísku landamærunum í von um að komast inn í fyrirheitna landið. Margir þeirra eru frá Suður-Ameríku en einnig koma sumir alla leið frá Indlandi. Fólkið er að flýja bágt efnahagsástand og slæm lífsskilyrði í heimalöndum sínum en þau hafa farið mjög versnandi vegna heimsfaraldursins. Við landamæri Mexíkó og Bandaríkjanna hefur yfirleitt Lesa meira
Krefjast sýknu eftir árásina á bandaríska þinghúsið – Kenna samsæriskenningum um
PressanMargir þeirra sem hafa verið ákærðir fyrir þátttöku í árás stuðningsmanna Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseta, á þinghúsið í Washington þann 6. janúar síðastliðinn vonast til að verða sýknaðir af ákæru um þátttöku í árásinni. Þeir vonast til að dómstólar taki tillit til þess að þeir hafi ekki vitað betur. Þrír verjendur, hið minnsta, hafa sagt að þeir muni byggja Lesa meira
