Mynd
Hundrað ár frá fæðingu Alberts – Valsmenn heiðra minningu sinnar mestu hetju
Í gær voru liðin 100 ár frá fæðingu Alberts Guðmundssonar, frægasta knattspyrnumanns Íslandssögunnar. Albert setti einnig sterkan svip á stjórnmál hér á landi á síðustu öld. Hann átti sæti í borgarstjórn og borgarráði, var kjörinn á Alþingi og gegndi stöðu fjármálaráðherra og síðar iðnaðarráðherra