Hann fer yfir þetta í skemmtilegu myndbandi á Facebook-síðu sinni þar sem hann greinir frá því að hann hafi í nokkurn tíma verið að leita sér að fótboltafélagi til að halda með.
„Hingað til hef ég haldið með öllum og engum en það sem hefur helst truflað mig er þessi tilhneiging Íslendinga að kalla fótbolta knattspyrnu. Þetta orð er komið frá Bjarna Jónssyni frá Vogi sem fann upp þetta nýyrði árið 1910 og mér bara leiðist þetta. Þetta er fótbolti fyrir mér,“ segir Jón í myndbandinu.
Hann bendir svo á að hann sé fæddur í Fossvoginum og eina fótboltaliðið sem hann hafi æft með sé Víkingur. Því væri kannski eðlilegt að halda með því en það getur hann ekki vegna þess að félagið heitir Knattspyrnufélagið Víkingur. „Ég gæti líka verið Valsari því ég lék Valla Valsara í mikilli fótboltamynd, Íslenski draumurinn,“ segir Jón en þar sem Valur heitir Knattspyrnufélagið Valur getur hann það ekki.
Hann nefnir svo að hann hafi búið í Vesturbænum í 30 ár og því væri kannski borðleggjandi fyrir hann að halda með KR. En þar sem félagið heitir Knattspyrnufélag Reykjavíkur getur hann það ekki. En hvaða lið er Jón þá búinn að velja sér?
Það er skemmst frá því að segja að Jón hefur ákveðið að halda með Íþróttafélagi Reykjavíkur, ÍR, í Breiðholti. Hann sýnir áhorfendum svo lista yfir þær íþróttir sem iðkaðar eru innan félagsins og þar er orðið fótbolti á lista.
Hann segir síðan að starfsemi ÍR hafi lengi verið í Vesturbænum, meira að segja á Landakotstúninu, steinsnar frá heimili Jóns, en þar æfði hann reyndar júdó löngu seinna.
„Ég er búinn að búa um alla borg eins og ÍR, er mikill Breiðholtsmaður, og svo er Ingigerður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ÍR frænka mín,“ segir Jón sem klykkir út með eftirfarandi orðum: „Hér með tilkynnist það að ég er ÍR-ingur, áfram ÍR!“
Þess má geta að ÍR situr á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta eftir 2-1 sigur á Þrótti í gær. ÍR er enn taplaust eftir sex leiki, hefur unnið fjóra og gert tvö jafntefli. Er liðið með 14 stig og situr eitt í toppsætinu.