Þegar rýnt er í veðurkortið næstu vikuna eða svo sést að lítil rigning er í kortunum. Eiginlega varla dropar, kannski einn og einn. Sama blíðan og engar skúrir. Ekkert virðist þetta vera að breytast. Laxveiðin, hún heldur áfram.
Þegar veiðitölur eru skoðaðar kemur í ljós að Eystri Rangá er langefst með 1360 laxa. Urriðafossinn kemur þar næst með 690 laxa, svo Miðfjarðará með 666 laxa. Í Ytri Rangá hafa veiðst 640 laxar og í Selá í Vopnafirði 620 laxar. Síðan langt fyrir neðan eru ár sem hafa lítið gefið vegna aðstæðna og nokkrar veiðiár sem hafa gefið mjög fáa laxa.
Silungsveiðin gengur ágætlega en aðeins að minnka núna.,,Við vorum að koma úr Veiðivötnum og oft fengið meira,“ sagði Jógvan Hansen og aðrir veiðimenn voru á Skagaheiðinni, þeir fengu nokkra góða fiska.
Þetta er staðan í alxveiðinni, bara skúrir láta á sér standa og laxinn er ekkert að koma mikið. Það er hægt að veiða silung um helgina. Veðurfarið er gott og fiskurinn fyrir hendi, öll fjölskyldan að renna fyrir fisk og fá hann til að taka, það er toppurinn.
Mynd: Friðsæld. Mynd María Gunnarsdóttir.