Eftir sjö ára starf fyrir Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur Ari Hermóður Jafetsson ákveðið að stíga til til hliðar og hverfa til annarra starfa.Þetta kemur fram á veiðivefnum Vötn og Veiði um helgina.
Á 80 ára afmælisári Stangaveiðifélags Reykjavíkur og allt er á fleygiferð ákveður framkvæmdastjóri að stíga til hliðar. Samkvæmt heimildum er félagið farið að líta í kringum sig eftir nýjum framkvæmdastjóra.
Fjölmörg verkefni blasa við á afmælisárinu og óhætt að segja að nýs framkvæmdastjóra bíða spennandi og skemmtileg viðfangsefni.
Mynd. Ari Hermóður Jafetsson á veiðislóðum.