,,Maríulaxinn var skemmtilegur og pabbi hjálpaði mér aðeins að landa honum,“ sagði Oliver Hall sem veiddi maríulaxinn sinn í Staðarhólsá í Dölum um helgina. Fiskurinn veiddist ofarlega í ánni í Brúarhyl.
,,Þetta var gaman og augnablik sem maður gleymir seint,“ sagði Oliver og vildi ólmur ná í stein til að fiskurinn slyppi ekki.
Laxinn tók maðkinn og baráttan stóð yfir í fimm mínútur.
Mynd. Þeir feðgar Oliver og Gunnar Hall með maríulax Olivers í Staðarhólsá í Dölum. Mynd G.Bender.