,,Auðvitað vantar smálaxinn. Hann hefur komið í ansi litlum mæli fyrir norðan, einn og einn lax,“ sagði veiðimaður sem var að veiða norðan fyrir fáum dögum en smálaxinn hefur lítið látið hjá sig þar um slóðir ennþá.
,,Við fengum laxa en það voru tveggja ára laxar, svo smálaxinn má fara að mæta,“ sagði veiðimaðurinn að lokum. Frekar fisklítill eftir veiðitúrinn norður.
Þetta ástand á við laxveiðiár á stóru svæði fyrir norðan. Smálaxinn er ekki mættur en hann mætir vondi innan tíðar. Það þarf nýjar göngur í árnar af smálaxi. Það er heila málið sem allir bíða spenntir eftir.
Mynd. Þetta er laxinn sem allir bíða eftir, smálaxinn. Mynd G.Bender