
Ladbible skýrir frá þessu og segir að Solovjov hafi sérstaklega nefnt Berlín, París og Vín sem borgir sem Rússar þurfa að „hertaka“ aftur. Hann sagði það ekki óskastöðu en nauðsynlegt ef Vesturlönd ögra Rússlandi.
„Við verðum enn einu sinni að eyðileggja Berlín og fara inn í þessa guðforlátnu borg. Enn einu sinni verðum við að fara inn í París. Enn einu sinni verðum við að frelsa Vín. Kannski skipta Austurríkismenn um skoðun,“ sagði hann.
Þessi ummæli hans komu á sama tíma og óttinn við að stríðið í Úkraínu breiðist út fer vaxandi. Margir atburðir á síðasta ári hafa aukið á þann ótta, meðal annars þegar rússneskum drónum var flogið inn í pólska lofthelgi sem og eistneska. Þetta hefur aukið spennuna á milli Rússlands og NATÓ.
Andrey Sidorov, starfsbróðir Solovjov, gekk enn lengra og sagði að nýlegt dauðsfall bresks manns í Úkraínu sé sönnun þess að Rússland og Bretland eigi í stríði. Hann sagðist telja að þetta geti réttlætt að beita kjarnorkuvopnum gegn Bretlandi.