
Sveitarfélag nokkurt á Skáni í Suður-Svíþjóð veitti nýlega leyfi fyrir því að veitinga- og gististaðir með áfengisleyfi gætu fengið að selja áfengið fyrir klukkan 11 á morgnana en almennt hefur slíkt ekki verið leyft í Svíþjóð. Þetta hefur hins vegar verið í boði í Danmörku en hópur ungra danskra kvenna sem heimsótti gistihús í bænum segir það ekki góða þróun að Svíar ætli sér með þessum hætti að færa áfengissölu í átt að því frjálsræði sem hefur löngum einkennt hana í Danmörku.
Fjallað er um þetta í Aftonbladet. Christer Paulson rekur lítið gistihús í þorpinu Mölle sem er hluti af sveitarfélaginu Höganäs, á Skáni, en þar búa samtals um 30.000 manns. Á gistihúsinu býður hann upp á veitingar, þar á meðal áfengi en þegar kom að því nýlega að endurnýja leyfið fyrir áfengissölu ákvað hann að sækja um leyfi til að selja áfengið fyrir klukkan 11 að morgni. Sveitarfélagið samþykkti umsóknina en það hefur þótt nokkrum tíðindum sæta í Svíþjóð en þar í landi er venjan almennt sú að selja má áfengi eftir klukkan 11 en ekki fyrr. Örfá sveitarfélög hafa leyft að áfengið sé selt fyrir 11 og nú hefur fjölgað í þeim hópi.
Einn helsti hvatinn að því að Paulson sótti um að fá að selja áfengi á morgnana eru danskir gestir sem hafa gist á gistihúsinu en þeir munu vera vanir því að geta keypt áfengi að morgni til í heimalandinu.
Flestir þeirra gesta sem voru viðstaddir fyrsta morguninn sem hann seldi áfengi voru sáttir við að geta fengið sér áfenga drykki með morgunmatnum en fjórum ungum konum frá Danmörku, sem höfðu gist á gistihúsinu, leist ekki vel á þetta nýmæli.
Ein þeirra Sysser Lodberg Rosenkrands segist ekki drekka áfengi á morgnana og það sé ekki heppilegt að drekka það á þessum tíma dags en margt eldra fólk sé hins vegar á öðru máli en hún í þeim efnum.
Vinkona hennar og ferðafélagi Katrine Nörgård segir það hafa verið gott hjá Svíum að hafa harðari reglur um áfengissölu en Danir. Hún segir áfengisdrykkju of mikla í Danmörku en líklega breyti það ekki miklu að banna áfengissölu að morgni dags heldur sé það líklegra til árangurs að herða reglur um sölu á kvöldin.
Sænskir gestir á staðnum virtust hins vegar almennt ánægðir. Einn þeirra sagði málið ekki snúast um hvatningu til meiri drykkju heldur að leyfa fólki að drekka áfengi þegar því sýnist.
Paulson segist ekki eiga von á að áfengissala á morgnana verði skaðleg lýðheilsu en hann muni sinna þeirri skyldu sem lögð sé á herðar leyfishafa, að selja fólki ekki of mikið á of skömmum tíma.